
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, vill að eldri borgurum verði gert kleift að taka á móti einstaklingum í vistráðningu, svokölluðum au pair, með sambærilegum hætti og barnafjölskyldur geta gert í dag.
Nanna Margrét greindi frá þingsályktunartillögu þessa efnis undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Markmiðið sé meðal annars að gera eldra fólki kleift að búa lengur á eigin heimili og draga úr einmanaleika.
Eldri landsmönnum fjölgar hratt
Nanna Margrét benti á að gert sé ráð fyrir að Íslendingum 67 ára og eldri fjölgi úr tæplega 60 þúsund í dag í tæplega 100 þúsund árið 2050. Samhliða þeirri þróun megi gera ráð fyrir auknu álagi á heimaþjónustu og hjúkrunarrými.
„Hugmyndin er einföld. Ungur einstaklingur býr hjá eldri borgara eða hjá eldri hjónum, veitir félagsskap og léttir undir í daglegu lífi,“ sagði Nanna Margrét.
Hún lagði áherslu á að ekki væri um hjúkrunarþjónustu að ræða og fyrirkomulagið ætti ekki að koma í stað faglegrar þjónustu. Um væri að ræða létta aðstoð og samveru sem gæti aukið öryggi eldra fólks og unnið gegn einmanaleika.
Telur ríkið geta sparað
Að mati Nönnu Margrétar gæti fyrirkomulagið einnig haft fjárhagslegan ávinning fyrir ríkissjóð. Sá sem kæmi til landsins í vistráðningu myndi búa inni á heimili eldri borgarans og því ekki auka eftirspurn eftir húsnæði. Dvölin yrði jafnframt tímabundin og veitti ekki rétt til varanlegrar búsetu.
Hún vísaði til þess að sambærilegar leiðir hefðu verið farnar í öðrum Evrópulöndum. Frakkar hefðu lögfest sambýli kynslóða og Bretar, Írar og Þjóðverjar farið svipaðar leiðir.
Nanna Margrét hvatti þingheim til að skoða tillöguna samhliða þeirri endurskoðun sem nú stendur yfir á vistráðningarkerfinu og sagði mikilvægt að útiloka ekki alla einstaklinga utan Evrópska efnahagssvæðisins.
„Bæði eldri borgarar og þeir sem hingað koma geta verið í viðkvæmri stöðu,“ sagði hún og vísaði til þess að Alþingi hefði lögfest eftirlitsskyldu árið 2023.
Að hennar mati þurfi fyrst og fremst að tryggja að því eftirliti sé framfylgt. Með því gæti fyrirkomulagið orðið, eins og hún orðaði það, „mikið heillaspor“.
