Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Innkalla eitt þekktasta orku­stykki landsins

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Innlent

Skatturinn sendir húsnæðis­eigendum mikilvæga áminningu

Innlent

Símaafrit varpar nýju ljósi leynimakk Samherja

Fólk

Selja einbýli sem aðeins ríkasta fólk landsins hefur efni á

Fólk

Íslendingar afhjúpa hvað gerist á bak við tjöldin á vinnu­staðnum

Innlent

Svavar Knútur gagnrýnir þá sem nota sjóslysið til að gera lítið úr stuðningi við aðra

Innlent

Tvær konur höfðu betur gegn fyrr­verandi vinnu­veitanda

Innlent

Börnin geta faðmað pabba sinn á ný

Minning

Árni Bjarnason er fallinn frá

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ

Vilhjálmur Árnason bæjar­stjóri hafnar því að um eiginlega fram­úrkeyrslu sé að ræða

Reykjanesbær
Reykja­nes­bær Mynd: Myllubakkaskóli

Harðar deilur eru komnar upp í bæjar­stjórn Reykja­nesbæjar vegna kostnaðar við framkvæmdir við Myllu­bakkaskóla og Holta­skóla en Heimildin greindi fyrst frá málinu.

Oddvitar Samfylkingarinnar og Framsóknar­flokksins gagnrýna nýjan meirihluta Sjálfstæðis­flokks og Miðflokks fyrir að hafa ráðist í framkvæmdir umfram fjár­heimildir án samþykkts viðauka.

Samkvæmt gögnum sem lögð hafa verið fyrir bæjarráð námu neikvæð frávik frá fjár­festinga­áætlun 272 milljónum króna í september. Guðný Birna Guðmunds­dóttir, oddviti Samfylkingarinnar, segir alvarlegt að kostnaður hafi fallið til án þess að viðbótar­fjár­heimild hefði áður verið samþykkt af bæjar­stjórn.

Framkvæmdir við skólana hafa staðið yfir í nokkur ár og er heildar­kostnaður þeirra nú kominn í um tíu milljarða króna. Fyrri meirihluti Samfylkingarinnar og Framsóknar­flokksins hafði ákveðið að dreifa fjár­mögnun framkvæmd­anna yfir nokkur ár.

Vilhjálmur Árnason bæjar­stjóri hafnar því hins vegar að um eiginlega fram­úrkeyrslu sé að ræða. Hann segir umræddan kostnað rúmast innan heildar­kostnaðar­áætlunar framkvæmd­anna en hafa fallið til fyrr en gert hafði verið ráð fyrir.

Vilhjálmur gagnrýnir jafnframt harðlega vinnu­brögð fyrri meirihluta og segir framkvæmdirnar hafa verið illa skipulagðar frá upphafi. Að hans sögn hafi ekki legið fyrir fullnægjandi kostnaðar­áætlun þegar ráðist var í verkið og ítrekaðar stöðvanir og endur­ræsingar hafi aukið kostnað sveitar­félagsins verulega.

Meirihlutinn hefur viðurkennt að óheppilegt hafi verið að ráðast í umrædda verkþætti áður en viðbótar­fjár­heimildir lágu fyrir en ítrekar að ekki sé um tapað fé að ræða.

Deilan snýst því bæði um formlegar fjár­heimildir og ábyrgð á þeirri stöðu sem komin er upp eftir margra ára framkvæmdir við skólana.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Óvelkominn við Land­spítalann og fjar­lægður af lögreglu

Þurfti ekki læknisaðstoð
Heimur

Grunaður um manndráp ók á fíl á flótta

Innlent

Félag múslima minnist sjómannanna þriggja sem fórust með Jökli

Innlent

Fjárhagur heimila stöðugur í heild en þrengir að ungu fólki

Innlent

Lands­réttur hafnar kröfu manns sem vildi fá leikja­tölvurnar sínar aftur

Pólitík

„Við skulum ekki gera lítið úr baráttu íslenskra kvenna“

Á alþjóðadegi Sameinuðu þjóðanna gegn ofbeldi á konum ræddi Diljá Mist Einarsdóttir stöðu kvenna
  • Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

  • Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

  • „Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

  • Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind