1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

3
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

4
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

5
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

6
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

7
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

8
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

9
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

10
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Til baka

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

„Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu?“

Bílar umferð Miklabraut
Bílaumferð á MiklubrautMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Brynhildur Jensdóttir

Stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl kallar eftir auknum aðgerðum til að tryggja öryggi barna í umferðinni og segir að ábyrgðin megi ekki fyrst og fremst hvíla á börnunum sjálfum.

Þetta kemur fram í aðsendri grein sem birtist á Vísi. Höfundar hennar eru Albína Pálsdóttir, Anna Margrét Ásbjarnardóttir, Brynhildur Bolladóttir, Geir Finnsson, Gísli Marteinn Baldursson, Halldóra Þórsdóttir, Hrafnhildur Ingibjargardóttir Hallsdóttir, Kjartan Sveinn Guðmundsson, Rán Flygenring, Sveinn Þórhallsson og Viktor Lorange. Þau eiga öll sæti í stjórn Samtaka um bíllausan lífsstíl.

Tilefni greinarinnar er meðal annars að ekið var á átta ára dreng í Mosfellsbæ. Drengurinn hlaut höfuðáverka og blóðnasir en ökumaðurinn ók af vettvangi. Höfundarnir vísa einnig til þess að ekið hafi verið á fimm ára barn í Hveragerði og þriggja ákeyrslna á börn við Laugarnesskóla síðasta haust.

„Hvers vegna er ekki meiri reiði yfir þessu? Hvernig stendur á því að ítrekaðar fréttir af ákeyrslum á börn virðast vart raska ró okkar?“ spyrja höfundarnir.

Þau segjast við lauslega yfirferð íslenskra fjölmiðla hafa fundið frásagnir af að minnsta kosti 22 börnum sem ekið hafi verið á hér á landi undanfarin tvö ár. Þau telja jafnframt líklegt að tilfellin séu fleiri þar sem aðeins sé um þau atvik að ræða sem rötuðu í fjölmiðla.

Höfundarnir gagnrýna að mikil áhersla sé lögð á að börn gæti sín sjálf í umferðinni með hjálmum, endurskinsmerkjum og stöðugri árvekni. Á sama tíma þurfi að gera ríkari kröfur til ökumanna og þeirra sem bera ábyrgð á skipulagi gatna.

„Börn eru óútreiknanleg. Þau hlaupa, leika sér, gleyma sér og gera mistök. Það er hluti af því að vera barn,“ skrifa þau og segja það vera hlutverk fullorðinna að skapa börnum öruggt umhverfi.

Þá benda þau á að 55 börn á aldrinum 0 til 14 ára hafi slasast sem gangandi eða hjólandi vegfarendur árið 2025 samkvæmt slysaskýrslu Samgöngustofu.

Samtökin kalla eftir öflugra hraðaeftirliti, öruggari götum, betri tölfræði og markvissari fræðslu til ökumanna.

„Það er kominn tími til að hætta að ætlast til þess að börnin lagi sig að hættulegri umferð og krefjast þess í stað að umferðin lagi sig að börnunum,“ segja höfundarnir.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Tjónið er talið nema meira en 2.000 Bandaríkjadölum
Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote
Heimur

Lést eftir hnífstungu í átökum við herbergisfélaga sinn á Lanzarote

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð
Heimur

Þrír létust í árásum Rússa á Kænugarð

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara
Peningar

Stórmeistarinn Vignir Vatnar stofnar Stórmeistara

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu
Myndir
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið
Innlent

Stefán vill draga gleymt sirkusfólk fram í dagsljósið

„Slíkar skemmtanir þóttu hins vegar ófínar og lágkúrulegar og voru meira og minna skrifaðar út úr sögunni.“
Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir gróft ofbeldi

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum
Innlent

Krefjast að umferðin lagi sig að börnunum

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu
Innlent

Akureyringur ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás með kylfu

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl
Innlent

Ók á móti rauðu og flúði undan lögreglu um Borgartún á stolnum bíl

Loka auglýsingu