
35 ára karlmaður frá Akureyri hefur verið ákærður í þremur aðskildum sakamálum sem tekin verða fyrir við Héraðsdóm Norðurlands eystra 2. nóvember. Ákærurnar varða sérstaklega hættulega líkamsárás, vopnalagabrot, þjófnaði og fíkniefnabrot.
Alvarlegasta ákæran snýr að atviki á Akureyri aðfaranótt 23. ágúst 2024. Manninum er gefið að sök að hafa ráðist á annan mann og slegið hann nokkrum sinnum í höfuðið með útdraganlegri kylfu. Brotaþolinn hlaut tvo fjögurra til fimm sentímetra skurði á höfði og þurfti að sauma annan þeirra með fjórum sporum.
Tveimur dögum síðar lagði lögregla hald á gaddakúlu í bandi og kylfu með álímdum sprautunálum í íbúð mannsins. Hann er ákærður fyrir vopnalagabrot vegna munanna og er þess krafist að þeir, ásamt útdraganlegu kylfunni, verði gerðir upptækir.
Önnur ákæra varðar tvo þjófnaði í mars 2025. Manninum er gefið að sök að hafa stolið tveimur ilmvatnsglösum úr verslun á Glerártorgi, að verðmæti rúmlega 40 þúsund krónur. Þremur dögum síðar er hann sakaður um að hafa stolið fimm ilmvatnsglösum, fjórum matarvínsflöskum og hleðslusnúru úr annarri verslun. Verðmætið var rúmlega 111 þúsund krónur.
Þriðja ákæran snýr að 0,26 grömmum af tóbaksblönduðu kannabisefni sem lögregla fann í vörslum mannsins á Akureyri í mars 2025.
Ákæruvaldið krefst þess að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu sakarkostnaðar.