
Ronen Bar krefst þriggja milljóna sikla í bætur frá Benjamin Netanyahu forsætisráðherra og sakar hann um að reyna að varpa ábyrgð á öryggisbrestina fyrir árás Hamas 7. október 2023 yfir á sig. Bar segist hafa varað forsætisráðherrann ítrekað við vaxandi ógn frá Hamas en að viðvörunum hans hafi verið hafnað eða þær hunsaðar.
Ronen Bar, fyrrverandi yfirmaður ísraelsku innanlandsöryggisþjónustunnar Shin Bet, höfðaði meiðyrðamál gegn Netanyahu í dag. Hann krefst þriggja milljóna sikla, jafnvirði rúmlega 975 þúsund Bandaríkjadala, vegna færslu sem Netanyahu birti á samfélagsmiðlinum X í september.
Í færslunni sakaði Netanyahu Bar um að hafa leynt upplýsingum sem bárust fyrir árás Hamas á suðurhluta Ísraels 7. október 2023 og tengdi hann við öryggisbrestina sem leiddu til árásarinnar.
Í málsgögnum sínum segir Bar að hann hafi varað Netanyahu við hættunni oftar en 20 sinnum á mánuðunum fyrir árásina. Hann hafi meðal annars lagt til fyrirbyggjandi aðgerðir gegn Hamas og markvissar aðgerðir gegn háttsettum leiðtogum samtakanna.
Bar heldur því fram að Netanyahu hafi fylgt stefnu um að viðhalda ró á Gaza-svæðinu og komið í veg fyrir tilraunir hans til að breyta þeirri stefnu. Hann segir einnig að Shin Bet hafi varað öryggisstofnanir Ísraels við yfirvofandi hættu aðfaranótt árásarinnar og að skrifstofa hernaðarráðgjafa forsætisráðherrans hafi fengið upplýsingar um stöðuna.
Bar viðurkennir þó að Shin Bet beri sjálf ábyrgð á mistökum sínum við að afla og miðla upplýsingum um árásina. Hann segir sig hafa sagt af sér vegna þeirra mistaka og krefst þess nú að sannleikurinn verði leiddur í ljós fyrir dómi.
Netanyahu svarar
Netanyahu svaraði málshöfðuninni með færslu á X og sakaði Bar um að hafa ekki hringt í sig þegar viðvörunarmerki komu fram aðfaranótt 7. október.
„Þú hafðir aðgang að leynilega símanúmerinu mínu og hefðir getað hringt í mig samstundis,“ skrifaði Netanyahu.
Hann spurði jafnframt hversu mörgum mannslífum hefði mögulega verið hægt að bjarga ef Bar hefði haft samband við hann í tæka tíð.
Bar segir hins vegar að samskipti við forsætisráðherrann hafi farið eftir þeim samskiptaleiðum sem Netanyahu sjálfur kom á og að hann hafi fyrirskipað að hernaðarráðgjafi forsætisráðherrans yrði upplýstur beint um stöðuna.
