
Bandarísk kona, sem starfaði við kennslu í grunnskóla í Missouri, missti starf sitt eftir að vinnuveitandi hennar komst að því að hún framleiddi jafnframt efni fyrir OnlyFans en Washington Post greinir frá málinu.
Sheena Sittner hafði starfað með börnum um árabil og sinnt kennslu í Parkway-skólahverfinu í úthverfi St. Louis í rúm tvö ár. Hún var ráðin í gegnum starfsmannaleiguna Kelly Education en var í september tekin af verkefnalista fyrirtækisins.
Sittner segir yfirmann hafa vísað sérstaklega til OnlyFans-reiknings hennar og notandanafns þegar henni var tilkynnt að aðgangur hennar að kennsluverkefnum hefði verið stöðvaður.
Samhliða kennslunni hafði Sittner byggt upp tekjur á OnlyFans, þar sem hún birtir kynferðislegt efni ætlað fullorðnum áskrifendum. Hún segir tekjurnar þar mun meiri en í kennslunni. Fyrir kennsludag hafi hún fengið um 140 Bandaríkjadali, en á OnlyFans geti hún stundum aflað sömu upphæðar á klukkustund.
Sittner segir aukatekjurnar hafa skipt fjölskylduna verulegu máli. Hún á þrjú börn, þar af tvö á háskólaaldri, og stundar sjálf nám í refsirétti. Skólagjöld, námslán og almennur framfærslukostnaður hafi því vegið þungt.
Kelly Education sagði í yfirlýsingu að öryggi og velferð nemenda væri í forgangi og fyrirtækið tæki allar ábendingar um staðgengilskennara alvarlega.
Sittner er ósátt við ákvörðunina og telur einkalíf sitt ekki hafa áhrif á hæfni hennar til kennslu. Athyglin sem málið hefur fengið hefur þó aukið verulega eftirspurn eftir efni hennar á OnlyFans.
