
Ingveldur Anna Sigurðardóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýndi skattastefnu ríkisstjórnarinnar harðlega undir liðnum störf þingsins á Alþingi í dag. Beindi hún sjónum sérstaklega að fyrirhugaðri gjaldtöku á ferðamenn á vinsælum ferðamannastöðum.
Ingveldur hóf mál sitt á að gera orðræðu Samfylkingarinnar að umtalsefni og sagði að þar væru slagorð á borð við „verkin tala“, „laga Ísland“ og „engar skattahækkanir“ ítrekuð. Raunin væri hins vegar önnur að hennar mati.
„Samt er verið að hækka skatta á allt launafólk í landinu og atvinnulífið. Er Samfylkingin að sannfæra okkur eða sjálfa sig?“ spurði Ingveldur.
Segir skattinn draga úr samkeppnishæfni
Ingveldur gagnrýndi sérstaklega það sem hún kallaði „Bláskógaskattinn“. Samkvæmt máli hennar stendur til að innheimta 4.500 krónur yfir háannatímann af þeim sem ekki eru með skattalega heimilisfesti á Íslandi þegar þeir heimsækja tiltekna áfangastaði.
Hún sagði fyrirhugaða gjaldtöku vera í óþökk sveitarstjórnarmanna og íbúa í nærsamfélaginu og taldi hana geta dregið úr samkeppnishæfni íslenskrar ferðaþjónustu.
„Það sér hver maður nema hæstv. ráðherrar og stjórnarliðar að þetta dæmi gengur ekki upp,“ sagði Ingveldur.
Að hennar mati gæti gjaldtakan á endanum skilað ríkissjóði minni tekjum fremur en meiri. Ferðamenn gætu í auknum mæli valið aðra áfangastaði ef kostnaður við Íslandsferð hækkaði enn frekar.
„Þjóðin er komin með upp í kok“
Ingveldur sagði þetta einfalda hagfræði og hvatti ráðherra ríkisstjórnarinnar til að falla frá áformunum. Hún lauk ræðu sinni með harðri gagnrýni á skattastefnu stjórnvalda og beindi orðum sínum sérstaklega að ráðherrum Viðreisnar.
„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi og ég óska eftir því að það fái glitta í smá markaðshyggju frá ráðherrum Viðreisnar.“
