Fara í efni
Kristrún Frostadóttir
„Þegar við tókum við var gert ráð fyrir halla á ríkissjóði næstu fimm árin“
Kristrún Frostadóttir
Innlent

Dæmd fyrir að aka á gangandi mann og yfirgefa slysstað

Fólk

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

Fólk

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Innlent

Börn tóku upp eigin blóðugu árás á feðga og hæddust að þeim

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Innlent

Bjarni varar við týndum áratug í efnahags­málum

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Sakar verkalýðsleiðtoga um að vinna gegn hagsmunum launafólks

„Hvað er best fyrir skuldugt fólk? Lægri vextir og engin verð­trygging“

Sólveig Anna Jónsdóttir
Sólveig Anna Jóns­dóttir Björn gagn­rýnir Sólveigu Önnu ræki­lega í nýrri færslu. Mynd: Bára Huld Beck

Björn Birgisson, samfélags­rýnir frá Grindavík, gagnrýnir Vilhjálm Birgisson og Sólveigu Önnu Jóns­dóttur í nýrri Facebook-færslu sem vakið hefur athygli, fyrir afstöðu þeirra til upptöku evru á Íslandi. Hann segir höfnun evrunnar geta komið niður á almenningi með hærri vöxtum og áfram­haldandi verð­tryggingu.

Í færslunni gagnrýnir Björn einnig það sem hann kallar „hlægilegan meting“ verkalýðs­leiðtoganna. Hann vísar þar til deilna þeirra við Höllu Gunnars­dóttur hjá VR vegna ólíkrar nálgunar á fram­lengingu kjara­samninga. Að sögn Björns hafa Vilhjálmur og Sólveig Anna sakað Höllu um leikara­skap vegna þess að hún vildi fara aðra leið til að fram­lengja samningana og forðast að þeir yrðu felldir úr gildi.

Segir lægri vexti og afnám verðtryggingar skipta mestu

Megin­áhersla Björns er þó á gjaldmiðla­málið. Hann segir að hagsmunir skuld­setts almennings felist fyrst og fremst í lægri vöxtum og afnámi verð­tryggingar, fremur en hefð­bundnum launa­hækkunum í krónum.

„Hvað er best fyrir skuldugt fólk? Lægri vextir og engin verð­trygging,“ skrifar Björn.

Hann gagnrýnir þá nálgun að leggja megin­áherslu á þriggja til fimm prósenta launa­hækkanir og segir slíkar hækkanir geta runnið út í verðlag og ýtt undir verðbólgu.

Að mati Björns hefði upptaka evru getað skapað tækifæri til breytinga á þessu sviði. Hann telur að þeir verkalýðs­leiðtogar sem hafi lagst gegn evrunni hafi þar með unnið gegn hagsmunum eigin félags­manna.

Segir pólitík ráða afstöðunni

Björn heldur því fram að andstaðan við upptöku evru ráðist fremur af pólitískum sjónar­miðum en hagsmunum launa­fólks. Hann segir að breyting hafi verið í boði en henni hafi verið hafnað vegna þess að þeir sem voru andvígir vildu ekki styðja stefnu ríkis­stjórnarinnar.

„Almenningi mun blæða fyrir vikið á komandi árum,“ skrifar Björn að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Pólitík

Grímur þekkir óttann um öryggi fjöl­skyldunnar

Þingmaðurinn hvatti á Alþingi til vandaðra rannsókna á brotum gegn lögreglumönnum vegna starfa þeirra.
Heimur

Prestur kom konu til bjargar á flótta undan kalkúnum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Pólitík

„Ég vil ekki mæta í fleiri jarðar­farir ungra manna“

Innlent

Héraðs­dómur synjar foreldrum Sólons um vitna­leiðslu

Pólitík

Stjórn­völd efla eftirlit með drónum og viðbúnað sérsveit­ar­innar

Ráðherrar segja þróun heimsmála og breyttar áskoranir kalla á sterkari borgarlega innviði. Samningarnir voru undirritaðir að loknum fundi þjóðaröryggisráðs.
  • Snorri varar við því að menn geti misst stjórn á gervi­greind

  • Þingmenn fara yfir bréf frá fólki með þroska­hömlun

  • Stefán Einar svarar Þorgerði með orðum Heiðu Kristínar

  • Kristrún segir hallalaus fjárlög sleggjuna sem þurfi til að ná vöxtum niður

  • „Staðan á vissum tímum sólar­hringsins orðin nánast óbærileg“