
Sjúkraflutningamaður í Baltimore í Bandaríkjunum hefur verið dæmdur í 25 ára fangelsi eftir að hafa játað að hafa mengað mat samstarfsfólks síns með líkamsvessum og tekið athæfið upp á myndband.
Christopher Carroll, 36 ára, hlaut dóminn á þriðjudag. Hann hafði í ágúst játað þrjú ákæruatriði sem sneru að því að hafa valdið því að aðrir innbyrtu líkamsvessa hans án vitundar þeirra eða samþykkis.
Við málflutning vegna játningarinnar greindi Logan Frye, aðstoðarsaksóknari Baltimore, frá því að þrjú myndskeið hefðu fundist þar sem Carroll sæist fróa sér og kasta af sér vatni á eigur eða matvæli á vinnustaðnum. Samstarfsfólk hans hafði ekki vitneskju um háttsemina.
Málið kom upp í kjölfar umfangsmikillar rannsóknar sem stóð yfir í nokkra mánuði. Carroll var upphaflega ákærður fyrir alls 20 brot auk þriggja ákæruatriða vegna skemmdarverka.
Samkomulag náðist hins vegar við ákæruvaldið þar sem Carroll játaði þrjú brot gegn því að önnur ákæruatriði yrðu felld niður.
Dómurinn yfir Carroll hljóðar upp á 25 ára fangelsi.
