
Pawel Bartoszek hefur verið kjörinn nýr formaður þingflokks Viðreisnar. Hann tekur við af Sigmari Guðmundssyni, sem snýr fljótlega aftur úr veikindaleyfi en hefur óskað eftir að taka að sér önnur verkefni á Alþingi.
Pawel er þingmaður Reykjavíkurkjördæmis norður og hefur verið formaður utanríkismálanefndar undanfarin tvö ár. Hann situr einnig í efnahags- og viðskiptanefnd og fleiri þingnefndum. Pawel var fyrst kjörinn á þing fyrir Viðreisn árið 2016 og aftur árið 2024.
Hann segist í tilkynningu þakklátur fyrir traust þingflokksins og segir mikilvæg verkefni fram undan, meðal annars afgreiðslu fjárlaga og aðgerðir gegn verðbólgu og háum vöxtum.
María Rut Kristinsdóttir var jafnframt kjörin varaformaður þingflokksins og Grímur Grímsson ritari.
