
Breski blaðamaðurinn Secunder Kermani var stöðvaður á Ben Gurion-flugvelli í Ísrael snemma í gær og var í fyrstu meinaður aðgangur að landinu. Hann var kominn til að fjalla um kosningarnar sem framundan eru.
Kermani er margverðlaunaður fréttaritari bresku sjónvarpsstöðvarinnar Channel 4 News í erlendum fréttum og hefur fjallað ítarlega um Ísrael, Vesturbakkann og Gaza. Við komuna fékk hann skriflega tilkynningu um að honum yrði ekki hleypt inn í landið.
Nokkrum klukkustundum síðar var honum þó veitt heimild til að koma inn í landið, eftir að Channel 4 hafði haft samband við ísraelska stjórnarerindreka.
Kermani sagði að landamærayfirvöld hefðu spurt hann hvort hann teldi Ísrael fremja þjóðarmorð á Gaza og hvort hann liti á Hamas og Hezbollah sem hryðjuverkasamtök.
„Er þetta ný stefna stjórnvalda, að hleypa aðeins ákveðnum blaðamönnum inn í landið? Jafnvel þótt þeir starfi hjá rótgrónum fréttamiðlum?“ skrifaði hann í WhatsApp-hóp sem erlendir blaðamenn og ísraelskir embættismenn eru í.
Eftir að hafa dvalið um stund í varðhaldi á flugvellinum var ákvörðuninni snúið við og Kermani leyft að fara inn í Ísrael. Síðar skrifaði hann á samfélagsmiðilinn X að hann hefði áhyggjur af því að aðrir blaðamenn, sem reynt hefðu að komast til landsins undanfarnar vikur, hefðu lent í svipuðum aðstæðum.
Árið 2024 hlaut Kermani bæði Emmy-verðlaun og BAFTA-verðlaun fyrir heimildarmynd Channel 4, Inside Gaza: Israel and Hamas at War, sem fjallaði um upphaf þjóðarmorðsins á Gaza eftir árás Hamas 7. október.
Samtök erlendra blaðamanna sögðust í gær vita af fleiri tilvikum á síðasta ári þar sem blaðamönnum hefði verið snúið frá við landamæri eða aðgangsleyfi þeirra afturkölluð.
Wtf! Just arrived in Tel Aviv for coverage ahead of the Israeli elections Only to be told the Israeli authorities are denying me entry to the country! Have reported widely on Israel / Palestine for the past 4 years for @Channel4News https://t.co/gF1yjBJ7jo
— Secunder Kermani (@SecKermani) October 11, 2026
