1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

3
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

4
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

5
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

6
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

7
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

8
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

9
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

10
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Til baka

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Um 350 brot voru tilkynnt á fyrri helmingi ársins og voru börn tæplega helmingur brotaþola

Krakkar ungmenni Reykjavík Hopp unglingar
Krakkar á rafhlauphjólumMyndin tengist fréttinni ekki beint.
Mynd: Stjórnarráðið/Hari

Tilkynningum um kynferðislega áreitni og stafræn kynferðisbrot hefur fjölgað verulega milli ára, samkvæmt tölfræði lögreglu. Um 350 brot voru tilkynnt á fyrri helmingi ársins og voru börn tæplega helmingur brotaþola. Tilkynningar hafa ekki verið fleiri síðan árið 2021.

Kristján Ingi Kristjánsson, fulltrúi í kynferðisbrotadeild lögreglunnar, segir þróunina meðal annars fylgja aukinni snjallsímanotkun og breyttum samskiptaleiðum. Brotamenn nýti samfélagsmiðla og leikjasíður til að komast í samband við börn og þykist jafnvel vera jafnaldrar þeirra.

„Það er búið að hleypa níðingum inn í herbergi til barnanna okkar,“ segir Kristján í samtali við Morgunútvarp Rásar 2.

Hann segir lögreglu fá alvarleg mál af þessu tagi inn á borð í hverri viku.

„Jafnvel er verið að kúga börn til að gera eitthvað við annað fólk. Þannig mál koma inn á borð lögreglu í hverri viku, þar sem til dæmis er búið að kúga börn til að senda nektarmyndir.“

Í kjölfarið geti börnunum verið hótað að myndunum verði dreift til foreldra, vina og ættingja nema þau sendi enn grófara efni eða greiði peninga. Dæmi séu um að unglingar hafi notað öll sumarlaun sín til að reyna að koma í veg fyrir dreifingu.

Kristján telur lögreglu aðeins sjá toppinn á ísjakanum. Brotunum fylgi mikil skömm og mörg þeirra séu illrekjanleg þar sem brotamenn geti verið erlendis.

Hann leggur áherslu á að forvarnir hefjist á heimilunum og segir hættulegt að afhenda mjög ungum börnum snjallsíma og sambærileg tæki án nægilegrar fræðslu um hætturnar.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla
Heimur

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega
Sport

Gerrard vill að Manchester City verði refsað harkalega

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant
Heimur

Rölti um þjóðgarð og fór heim með risademant

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ
Pólitík

Tíu milljarða skólaframkvæmdir kveikja pólitískt bál í Reykjanesbæ

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Innlent

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra
Heimur

Mætti ísbirni, var handtekinn fyrir njósnir og gekk 58 þúsund kílómetra

Nýdönsk stofnar fyrirtæki
Peningar

Nýdönsk stofnar fyrirtæki

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns
Heimur

Bryan Cranston harmi sleginn eftir andlát sjónvarpssonar síns

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ
Innlent

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ

Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

óskaði eftir að fá réttargæslumann vegna meðferðar máls
Járnþrúður skipuð formaður
Innlent

Járnþrúður skipuð formaður

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“
Innlent

„Kúga börn til að senda nektarmyndir“

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti
Innlent

Íslensk karlasamtök kvarta undan ójafnrétti

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ
Innlent

Fingralangir fóru á stjá í Garðabæ

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“
Innlent

Lögregla kölluð til vegna „afbrigðilegrar hegðunar“

Loka auglýsingu