
Umfangsmikil mótmæli hafa farið fram víða um Frakkland undanfarnar vikur og hafa hundruð þúsunda manna tekið þátt. Óánægjan á meðal annars rætur að rekja til framhaldsskólanema sem krefjast úrbóta á aðbúnaði og starfsaðstæðum í skólum landsins.
Nemendur hafa lýst slæmu ástandi í fjölmörgum skólum. Bekkir séu víða yfirfullir, skortur sé á nauðsynlegum búnaði og í sumum tilfellum séu ekki einu sinni næg borð og stólar fyrir alla nemendur. Þá hafa komið fram dæmi um illa viðhaldið skólahúsnæði, meðal annars salerni þar sem hurðir vanti.
Óánægjan snýr einnig að löngum skóladögum, miklu álagi og erfiðum vinnuaðstæðum kennara. Mótmælendur krefjast þess að stjórnvöld verji auknu fjármagni til menntakerfisins, bæti skólahúsnæði og fjölgi kennurum.
Markmiðið er að fækka nemendum í bekkjum og tryggja bæði nemendum og kennurum viðunandi aðstæður til náms og starfa.
Gagnrýnir umræðu um innflytjendur
Karen Kjartansdóttir, almannatengill og fyrrverandi framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar, gagnrýnir harðlega þá sem hafa tengt óeirðir og átök í tengslum við mótmælin við innflytjendur og hælisleitendur.
Í færslu á Facebook segir Karen að sumir virðist líta á mótmælin sem merki um að Frakkland sé orðið „þriðja heims ríki“. Slíkar skýringar beri að hennar mati vott um litla þekkingu á franskri sögu og mótmælahefð.
Hún bendir á að Frakkar eigi langa sögu róttækra mótmæla, verkfalla og átaka við yfirvöld. Þar nefnir hún meðal annars frönsku byltinguna, Parísarkommúnuna og mótmælin í maí 1968, þegar námsmenn reistu götuvígi í París og hörð átök brutust út við lögreglu. Mótmælin þróuðust síðar yfir í umfangsmikil verkföll.
„Frakkar þurfa ekki innflytjendur til að verða róttækir“
Karen vísar einnig til þess að franskir bændur hafi ítrekað lokað vegum, kveikt í dekkjum og losað mykju við opinberar byggingar í mótmælaskyni. Slökkviliðsmenn hafi sömuleiðis lent í hörðum átökum við lögreglu og mikil mótmæli hafi fylgt tilraunum stjórnvalda til að hækka eftirlaunaaldur.
„Frakkar þurfa ekki innflytjendur til að verða róttækir,“ skrifar Karen og gagnrýnir sérstaklega að myndskeið af svörtum ungmennum við mótmæli séu notuð til að draga víðtækar ályktanir um innflytjendur og stöðu fransks samfélags.
Hún segir nær að beina sjónum að kröfum ungmennanna sjálfra.
„Þau vilja fleiri kennara, færri nemendur í bekkjum, næg borð, viðhald og skólahúsnæði sem hægt er að vera í,“ skrifar Karen.
Hún lýkur færslunni með afar beittum orðum í garð þeirra sem hún telur ýta undir slíkar skýringar á mótmælunum og segir: „Megi félagar mínir troða þessum furðuskoðunum sínum upp í rússneska bottann á sér.“
