1
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

2
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

3
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

4
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

5
Heimur

Kona flaug alein til Boston og fékk vélina út af fyrir sig

6
Fólk

Fimm fatamistök sem geta gert flugferðina verri

7
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

8
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

9
Fólk

Landsliðsmaður Íslands á von á barni

10
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

Til baka

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Skutl sem átti aðeins að taka nokkrar mínútur tók þess í stað fleiri klukkustundir.

Bæring Ssjúkrahúsið
Sjúkrashúsið í BæringKonugreyið mátti dúsa í bílnum í klukkustundir
Mynd: Bæring-sjúkrahúsið

Kona á áttræðisaldri var flutt í öfuga átt eftir læknisskoðun á Bærum-sjúkrahúsið í Noregi. Í stað þess að aka henni um 500 metra á hjúkrunarheimili þar sem hún dvelur var henni ekið alla leið í Hallingdal, í nokkurra klukkustunda fjarlægð. Hún sat í bílnum, tímunum saman án þess að henni væri boðið upp á mat, drykk eða salernisferð.

kort
Mynd: OpenmapTiles

„Um tvöleytið hringdu þau frá Pasientreiser (sem sjá um akstursþjónustu fyrir sjúklinga) og spurðu á hvaða heimilisfang ætti að aka móður minni í Ål í Hallingdal,“ segir sonur konunnar við norska miðilinn Budstikka.

Hann hafði verið með móður sinni þar til hún steig upp í bílinn eftir skoðunina. Þegar bílstjórinn hringdi áttaði hann sig á því að móðir hans var komin á allt annan stað en til stóð.

„Þá urðum við svolítið stressaðir,“ segir hann.

Ferðin, sem venjulega tekur aðeins nokkrar mínútur, tók þess í stað nokkrar klukkustundir en Ål er í 180 kílómetra fjarlægð frá Bærum. Enginn hafði leitað að konunni á meðan hún var á leiðinni, fyrr en sonur hennar fékk símtalið frá Hallingdal.

Konan sagðist ekki hafa áttað sig fyllilega á því hvert verið væri að fara með hana og hélt að hún væri á leið á annan stað.

Mikið álag fyrir konuna

Konan býr á Mariehaven-hjúkrunarheimilinu í Bærum, skammt frá Bærum-sjúkrahúsi, þar sem hún fór í skoðun einn morgun í september. Hún kom ekki aftur á hjúkrunarheimilið fyrr en rétt fyrir klukkan sjö um kvöldið, samkvæmt gögnum sem Budstikka hefur fengið aðgang að.

Konan vill að fjallað sé um málið í fjölmiðlum en kýs að koma ekki fram undir nafni. Sonur hennar vill því einnig vera nafnlaus.

Konan mun ekki hafa hlotið líkamlegan skaða en atvikið reyndist henni erfitt. Að því loknu leitaði sonurinn svara hjá Pasientreiser, sjúkrahúsinu og sveitarfélaginu.

„Aðeins sveitarfélagið hefur svarað fyrirspurn minni. Það baðst afsökunar og sagði að sjúkrahúsið bæri ábyrgð á mistökunum,“ segir hann.

„Þetta átti ekki að geta gerst,“ segir Irene Ranvig Vik, starfandi deildarstjóri flutninga- og þjónustumála við Bærum-sjúkrahús, við Budstikka.

Hún segist skilja að reynslan hafi verið erfið fyrir konuna og aðstandendur hennar. Málið sé flókið og unnið sé að því að komast að því hvað fór úrskeiðis.

Annað alvarlega tilvikið á skömmum tíma

Þetta er annað skiptið á skömmum tíma sem sjúklingur er fluttur á rangan stað, að því er Budstikka greinir frá.

Um miðjan júlí fannst kona á tíræðisaldri, sem þjáðist af heilabilun, ein utandyra að næturlagi eftir að henni hafði verið ekið á rangt heimilisfang. Hún átti einnig að fara frá Bærum-sjúkrahúsi á Mariehaven-hjúkrunarheimilið.

Bærum-sveitarfélagið hefur lýst áhyggjum af því að tvö alvarleg atvik hafi átt sér stað á skömmum tíma.

„Sjúklingar, aðstandendur og stofnanir sveitarfélagsins verða að geta treyst því að flutningar til og frá sjúkrahúsum og læknavöktum séu öruggir og að sjúklingar komist á réttan stað,“ segir Richard Kongsteien, upplýsingafulltrúi sveitarfélagsins.

Hann telur atvikin sýna að mistök hafi átt sér stað sem verði að rannsaka og bregðast við.

Sjúkrahúsið talið bera ábyrgð

Bæði Pasientreiser, sem sá um flutninginn, og Bærum-sveitarfélagið telja að Bærum-sjúkrahúsið beri ábyrgð á mistökunum.

Kongsteien segir sjúkrahúsið bera ábyrgð á sjúklingnum, einnig meðan á flutningi stendur. Sjúkrahúsið sé með samning við Pasientreiser um að annast flutninginn fyrir sína hönd.

Hann segir sveitarfélagið hafa rætt við bæði sjúkrahúsið og heilbrigðisyfirvöld í kjölfar atviksins.

„Við fylgjum málinu eftir, bæði faglega og innan stjórnsýslunnar, til að tryggja að brugðist verði við,“ segir Kongsteien.

Hann gerir jafnframt ráð fyrir að um einangrað tilvik sé að ræða og segir mikilvægt að draga lærdóm af því svo slíkt endurtaki sig ekki.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

McCallum segir Rússland vera helstu ógnina við öryggi Bretlands, en Íran væri skammt undan.
Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi
Innlent

Karen segir innflytjendur gerða að blórabögglum í Frakklandi

Salmonella greindist í innfluttu kryddi
Innlent

Salmonella greindist í innfluttu kryddi

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar
Pólitík

Hlutverkabreytingar innan Viðreisnar

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október
Myndband
Menning

Heimsþekktir kizomba-dansarar kenna á Íslandi í október

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna
Peningar

Fyrirtæki sem eiginmaður Kristrúnar á hlut í tapar tugum milljóna

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang
Innlent

Lögregla leitar konu sem ók á barn og flúði vettvang

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum
Menning

Ragnheiður, Guðmundur og Leifur dusta rykið af perlunum

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla
Innlent

Brotaþoli kvartaði undan lögreglustjóra en þarf að leita til dómstóla

Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar
Heimur

Yfirmaður bresku leyniþjónustunnar varar við nýrri öld ógnar

McCallum segir Rússland vera helstu ógnina við öryggi Bretlands, en Íran væri skammt undan.
Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla
Heimur

Grunur um skipulagt ofbeldi gegn yngri nemendum í sænskum skóla

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu
Heimur

Sjúklingi ekið 180 kílómetra í ranga átt frá heimili sínu

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið
Heimur

Horfði á klám í háloftunum og lét þar ekki staðar numið

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael
Heimur

Breskum verðlaunablaðamanni meinaður aðgangur að Ísrael

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið
Heimur

Tvöfalt líf kennara komst upp og kostaði hana starfið

Loka auglýsingu