
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að ökumanni bifreiðar sem ók á átta ára dreng á reiðhjóli við Vefarastræti 11 í Mosfellsbæ í gærkvöld. Atvikið átti sér stað um klukkan 18.30.
Við áreksturinn féll drengurinn af reiðhjólinu og varð fyrir meiðslum. Þá urðu einnig skemmdir á hjólinu. Ökumaður bifreiðarinnar ók hins vegar af vettvangi án þess að kanna líðan drengsins eða hvort hann hefði slasast.
Lögregla minnir á að ökumönnum beri við slík atvik að ganga úr skugga um hvort slys eða eignatjón hafi orðið og tilkynna málið til lögreglu. Áverkar geti komið í ljós síðar þótt þeir séu ekki sjáanlegir strax á vettvangi.
Talið er að ökumaðurinn sé ung kona og er hún hvött til að gefa sig fram. Lögregla óskar jafnframt eftir upplýsingum frá vitnum að slysinu. Þeir sem búa yfir upplýsingum eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.
