1
Minning

Helgi Ólafsson er fallinn frá

2
Innlent

Hrekkjavökuskemmtun fór úr böndunum í Kópavogi

3
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

4
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

5
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

6
Pólitík

Segir vinstri menn hafa yfirtekið Sjálfstæðisflokkinn

7
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

8
Innlent

Réttarhöld yfir Írisi „eltihrelli“ hefjast á mánudag

9
Innlent

Leigusalinn kenndi utanlandsferð um veggjalúsina

10
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Til baka

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

„Það er þetta með hugrekkið, það er smitandi“

Andrea Róbertsdóttir
Andrea Róbertsdóttir
Mynd: Aðsend/Silla Páls

Andrea Róbertsdóttir, framkvæmdastjóri FKA, Félags kvenna í atvinnulífinu, hefur komið víða við á sínum ferli og prófað ýmislegt. Hún hefur meðal annars starfað sem framkvæmdastjóri, forstöðumaður, mannauðsstjóri, verkefnastjóri og ráðgjafi og safnað að sér mikilli reynslu úr ólíkum áttum atvinnulífsins. Í vor var hún jafnframt tilnefnd til Stjórnendaverðlauna Stjórnvísi.

Andrea settist á dögunum niður í ítarlegt viðtal þar sem hún opnar sig um ýmislegt, bæði úr starfi og einkalífi. Þar fer hún yfir rúmlega tveggja áratuga feril sinn, áskoranirnar sem hafa orðið á vegi hennar og reynsluna af því að leiða fólk, byggja upp vinnustaðamenningu og takast á við breytingar.

En það er ekki bara stjórnandinn Andrea sem fær að njóta sín í viðtalinu. Hún ræðir einnig um lífið utan vinnunnar, móðurhlutverkið, náttúruna og ýmislegt annað sem hefur mótað hana í gegnum tíðina.

Ferill Andreu hefur verið fjölbreyttur og spannar meðal annars atvinnulíf, fjölmiðla og félagasamtök. Í viðtalinu gefur hún lesendum tækifæri til að kynnast manneskjunni á bak við starfsheitið og segir frá ýmsu sem sjaldnar ratar upp á yfirborðið.

Reynslunni ríkari

Andrea á tvo syni og mann og býr fjölskyldan í Garðabæ.

„Við vildum vera hluti af sveitasamfélagi og bjuggum fyrstu ár eldri stráksins í Kjós í stórum skógi á landbúnaðarlóð en fluttum svo í Garðabæinn til ömmu aldarinnar, mömmu minnar, sem hefur verið ein mesta stoð og stytta í lífinu. Það er engu líkt að eignast börn og drengina elska ég endalaust. Það er dásamlegt að sjá þá þroskast og verða sjálfstæða. Það er svo magnað að hugsa til þess að störfin sem þeir fara að vinna þegar þeir verða fullorðnir er ekki einu sinni búið að finna upp. Það eru svo mörg tækifæri hjá ungu fólki og ég get lært svo margt af þeim. Með manninum mínum finnst mér best að vera í iðnaðarmannagallanum eða á fjöllum. Yngri drengurinn minn er 15 ára og stóri strákurinn minn nýorðinn 18 ára og því miklar breytingar. Við höfum alltaf lagt áherslu á að hafa símalausa samveru við matarborðið og borða saman kvöldmat. Við höfum gaman að því að ferðast, hlusta á tónlist og fara í sund. Þá er ekki eins spennandi að vera með mér eins mikið og áður en þeir segja að ég sé besta mamman. Það er mín mesta gæfa að hafa unnið mömmulottóið og fengið drengina í mitt líf – þeir eru skólastjórarnir í lífinu og ævintýraráðherrar.“

Andrea er spurð um lífsreynslu sem hefur mótað hana og nefnir hún ævintýrlega ferð. Hinn stóri heimur heillaði og árið 2006 seldi hún bílinn og íbúðina og fór ein í bakpokaferðalag í nokkra mánuði um Suðaustur-Asíu.

„Það var eins og að krækja sér í eina ef ekki tvær meistaragráður. Það gat verið mjög flókið að vera ung kona ein á ferð með allt á bakinu en eins og alltaf, án þess að vaða út í einhverja vitleysu, þá vil ég ekki láta óttann skemma fyrir mér og fór í þessa mögnuðu ferð. Ég gisti á farfuglaheimili og gistiheimilum og ferðaðist til nokkurra landa og kom heim læsari á ólíka menningu og reynslunni ríkari. Ég kynntist alls konar fólki, borðaði alls konar mat, gisti á furðulegum stöðum, skoðaði ótal staði og andaði að mér framandi menningu. Þetta bakpokaferðalag er eitt af því sem kemur upp í hugann þegar ég er spurð um lífsreynslu sem hefur mótað mig. Annað sem kemur upp í hugann er þegar ég 15 ára og Hrund vinkona mín 16 ára vorum að vinna sem rekstrarstjórar á hamborgarastað myrkranna á milli til að safna fyrir ferð til Ibiza. Við vorum búnar kaupa miða til að fara einar út í frí og fjör en síðan fengum við ekki útborgað. Nú eins og bestu vinkonur gera á gelgjunni er að fá sér lögfræðing. Við fengum okkur lögfræðing til að fá launin og án þess að fara í málareksturinn og alla sólarsöguna þá enduðum við í eftirminnilegri ferð einar á Ibiza um sumarið eins og til stóð. Þegar ég sé fimmtán ára unglinga í dag þá sé ég alltaf betur hvað við vorum seigar að fá okkur lögfræðing og standa í hárinu á glæpamönnum. Ef ég væri lögfræðingur og fengi okkur vinkonurnar inn á skrifstofu myndi ég espast öll upp og vilja allt fyrir þessi krútt gera. Ég er svo stolt af þessum stelpum að hafa fengið sér lögfræðing og mér finnst við svo hugrakkar. Það er þetta með hugrekkið, það er smitandi og það er svo gaman að hafa víkkað þægindahringinn og haft kjark til þess snemma á lífsleiðinni. Ég er þakklát fyrir vináttuna.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri
Landið

Nál fannst í hrekkjavökusúkkulaði á Akureyri

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann
Heimur

Bauð internetinu í brúðkaupið og allt fór á annan endann

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús
Myndband
Heimur

Dádýr skall á konu og braust inn í þvottahús

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum
Myndir
Innlent

Falsaðar ljósmyndir orðnar algengar í fasteignaauglýsingum

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti
Innlent

Einn látinn og annar á gjörgæslu eftir hnífstunguárás í Breiðholti

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Trúður vakti óhug við grunnskóla
Heimur

Trúður vakti óhug við grunnskóla

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum
Innlent

Vopn komu við sögu þegar unglingapartý fór úr böndunum

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd
Innlent

Gleymdi kaffibolla og rusli og endaði fyrir kærunefnd

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð
Innlent

Fluttur á bráðamóttöku eftir að eldur kom upp í íbúð

Laxness slær í gegn hjá The Guardian
Menning

Laxness slær í gegn hjá The Guardian

Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar
Fólk

Sjö góðar ástæður til að baka oftar

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina
Myndir
Fólk

Óvenjulegt sölutilboð í Reykjavík þar sem makaskipti koma til greina

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli
Fólk

Breiðholtslaug, Laugardalur og Hósiló meðal staða sem fá góð meðmæli

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu
Myndir
Fólk

Helgafell á Seltjarnarnesi komið á sölu

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD
Fólk

Fimm hlutir sem geta reynt á sambandið þegar makinn er með ADHD

Ekkert minni konur en aðrar konur
Viðtal
Fólk

Ekkert minni konur en aðrar konur

Loka auglýsingu