
Spænska dansparið Jesus og Anni kemur til Íslands dagana 24. og 25. október til að kenna urban kizomba. Námskeiðið fer fram í The Dance Space við Höfðabakka og lýkur með danskvöldi á Mama Reykjavík á sunnudagskvöldinu.
Kizomba er paradans sem á rætur sínar að rekja til Angóla og hefur stundum verið líkt við afrískan tangó. Urban kizomba er nútímalegri útgáfa dansins sem þróaðist í París og sækir áhrif í fleiri dansstíla.
Jesus og Anni hafa kennt dans í rúm átta ár og eru búsett í Madrid. Þau kenna reglulega á Spáni og ferðast um heiminn til að taka þátt í danshátíðum og halda námskeið. Jesus stundaði fótbolta í tvo áratugi áður en hann sneri sér að dansi, en Anni hefur dansað frá fimm ára aldri.
Í kennslunni leggja þau áherslu á danstækni, nákvæmni og skýrar hreyfingar. Námskeiðið er ætlað fólki með mismikla reynslu og verður aðlagað að getu þátttakenda. Ekki er nauðsynlegt að mæta með dansfélaga, þar sem reglulega verður skipt um pör. Þeir sem mæta saman geta þó valið að dansa eingöngu við hvort annað. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.
Kennslan fer fram laugardaginn 24. október og sunnudaginn 25. október, báða dagana frá klukkan 13 til 16. Danskvöld verður síðan haldið á Mama Reykjavík á sunnudag frá klukkan 20 til 23.
Hægt er að sjá viðburðinn hér.
Hér fyrir neðan má svo sjá Jesus og Anni sýna danshæfileika sína.
