
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, kallaði eftir skýrri afstöðu ríkisstjórnarinnar til rannsókna og mögulegrar vinnslu olíu og gass í íslenskri lögsögu á Alþingi í dag. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði ríkisstjórnina ekki ætla að banna olíuleit og að enginn fjandskapur væri af hálfu stjórnvalda í garð slíkra verkefna.
Kallar eftir skýrri afstöðu stjórnvalda
Sigmundur Davíð sagði mikla möguleika geta falist í olíu- og gaslindum innan íslenskrar lögsögu og vísaði meðal annars til mats Viðskiptaráðs og áhuga fjárfesta. Hann lýsti þó áhyggjum af viðbrögðum stjórnvalda.
„Munu íslensk stjórnvöld standa í vegi fyrir því ef menn sýna því áhuga að ráðast hér í alvörurannsóknir og vonandi síðan hugsanlega vinnslu á olíu og gasi?“ spurði Sigmundur Davíð.
Kristrún sagði fyrri ríkisstjórn hafa lagt fram frumvarp um bann við olíuleit en núverandi ríkisstjórn hygðist ekki fara þá leið. Rannsóknir á Drekasvæðinu bentu hins vegar til þess að litlar líkur væru á olíu og gasi í vinnanlegu magni.
„Hér er enginn að banna neitt með lögum,“ sagði Kristrún og bætti við að þeir sem teldu sig geta komist að annarri niðurstöðu gætu farið formlegar leiðir og kynnt stjórnvöldum sín sjónarmið.
„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Sigmundur Davíð sagði það ekki nægja að stjórnvöld bönnuðu ekki olíuleit. Fjárfestar þyrftu jafnframt að geta treyst því að stjórnvöld væru tilbúin til samstarfs.
„En menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld sem mæta hér og segja bara: Ja, við teljum ekki ástæðu til að menn séu að þessu,“ sagði Sigmundur Davíð.
Hann sagði mögulega nýtingu auðlindanna geta skipt sköpum fyrir Ísland til langrar framtíðar og óskaði eftir staðfestingu á að áhugasömum fjárfestum yrði vel tekið og stjórnvöld myndu ekki reyna að þvælast fyrir þeim.
„Það er enginn fjandskapur“
Kristrún svaraði því til að ekkert væri útilokað enda hefði engin rannsóknarhola verið boruð á svæðinu.
„Það er enginn fjandskapur í garð þessa máls frá stjórnvöldum,“ sagði Kristrún.
Hún ítrekaði þó að áratugalangar rannsóknir sérfræðinga bentu til þess að verkefnið væri ekki arðbært þar sem olía væri ekki talin finnast í vinnanlegu magni.
Forsætisráðherra lauk máli sínu á að ítreka að ríkisstjórnin hygðist ekki banna olíuleit.
„Ef fólk hefur áhuga á að fara lengra með þetta mál þá þarf það bara að bera sig eftir björginni gagnvart stjórnvöldum hér. Það er bara í góðu lagi mín vegna,“ sagði Kristrún.
