
Samtök um karlaathvarf fara hörðum orðum um Jafnréttissjóð og Jafnréttisstofu og segja opinbert jafnréttiskerfi á Íslandi hafa brugðist körlum og drengjum en þetta kemur fram í fréttatilkynning frá samtökunum. Samtökin benda meðal annars á að konur stýri, samkvæmt þeirra eigin samantekt, 89 prósentum styrktra verkefna sjóðsins og að aðeins eitt verkefni undir stjórn karls hafi fengið styrk frá árinu 2021.
Mennirnir á bak við samtökin hafa sjálfir ítrekað ratað í fjölmiðla og skapað talsverðar deilur.
Samtök um karlaathvarf voru stofnuð árið 2018. Við stofnun þeirra sátu Huginn Þór Grétarsson, Gunnar Kristinn Þórðarson, Friðgeir Örn Hugi Ingibjartsson og Kristinn Sæmundsson í stjórn. Samtökin tengdust jafnframt svokölluðum feðrahreyfingum, þar á meðal #DaddyToo.
Huginn höfðað fjölda meiðyrðamála
Huginn Þór Grétarsson, barnabókahöfundur og útgefandi, hefur verið einn sýnilegasti forsvarsmaður samtakanna. Hann var jafnframt í forsvari fyrir #DaddyToo, hóp feðra sem töldu sig hafa verið beitta órétti í deilum við barnsmæður sínar.
Huginn hefur vakið mikla athygli fyrir fjölda meiðyrðamála sem hann hefur höfðað vegna ummæla sem fallið hafa um hann. Hann hefur bæði unnið og tapað slíkum málum.
Kristinn Sigurjónsson hefur einnig komið fram fyrir hönd Samtaka um karlaathvarf.
Kristinn starfaði áður sem lektor við Háskólann í Reykjavík en var sagt upp árið 2018 í kjölfar ummæla sem hann lét falla um konur í lokuðum Facebook-hópi sem nefndist Karlmennskuspjallið.
Segja 89 prósent verkefna í höndum kvenna
Það eru þessi samtök sem beina nú spjótum sínum að Jafnréttissjóði og segja tölurnar tala sínu máli.
Samkvæmt samantekt þeirra stýra konur 115 af 129 styrktum verkefnum þar sem kyn verkefnisstjóra er þekkt, eða 89 prósentum. Frá árinu 2021 hafi aðeins einn af 29 styrkjum farið til verkefnis sem karl stýrir.
Samtökin segja enn fremur að aðeins tíu af 161 verkefni, eða sex prósent, fjalli sérstaklega um karla eða drengi. Konur stýri sex þessara tíu verkefna.
Þau fullyrða jafnframt að ekkert verkefni fjalli sérstaklega um karla sem þolendur ofbeldis, feður í forsjármálum, sjálfsvíg karla eða brottfall drengja úr námi. Á sama tíma hafi 20 verkefni fjallað sérstaklega um ofbeldi gegn konum.
Þá segja samtökin kvennasamtök hafa fengið 21 styrk úr Jafnréttissjóði en samtök karla engan, þrátt fyrir að þau hafi sótt um.
Gagnrýna kvennastjórn sjóðsins
Tilefni yfirlýsingarinnar er meðal annars nýleg skipun Jarþrúðar Ásmundsdóttur sem formanns Jafnréttissjóðs.
Samtök um karlaathvarf benda á að Jarþrúður sé fjórða konan í röð sem gegnir formennsku sjóðsins. Aðalstjórn hans sé nú eingöngu skipuð konum en allir þrír varamenn séu karlar. Samtökin segja þá stöðu ganga gegn anda jafnréttislaga.
Þau beina einnig sjónum að Háskóla Íslands og fullyrða að skólinn hafi fengið meira en 210 milljónir króna úr sjóðnum. Jafnframt starfi þrír af átta einstaklingum í stjórn og fagráði sjóðsins við háskólann.
Jafnréttisstofa fær ekki síður á baukinn. Samtökin segjast hafa farið yfir 447 Facebook-færslur stofnunarinnar og að 66 þeirra fjalli um konur og stúlkur en aðeins tvær um stöðu karla. Þá segja þau stofnunina aldrei hafa minnst alþjóðlegs dags karla.
Fengu sjálfir milljónir þrátt fyrir efasemdir matsnefndar
Samtök um karlaathvarf hafa sjálf fengið opinbert fé til að sinna málefnum karlkyns þolenda ofbeldis.
Inga Sæland, þáverandi félags- og húsnæðismálaráðherra, veitti samtökunum 3,5 milljóna króna styrk til stuðnings, ráðgjafar og fræðslu fyrir karlkyns þolendur ofbeldis.
Styrkurinn vakti athygli þar sem sérstök matsnefnd ráðuneytisins hafði gert verulegan fyrirvara við umsókn samtakanna.
Nefndin benti annars vegar á að umsókn þeirra væri sú eina sem næði sérstaklega til karla sem yrðu fyrir ofbeldi í nánum samböndum og að málaflokkurinn hefði ekki fengið mikla athygli.
Hins vegar taldi nefndin forsvarsmenn Samtaka um karlaathvarf ekki réttu aðilana til að framkvæma verkefnið, sem átti meðal annars að fela í sér rannsókn. Þrátt fyrir það ákvað ráðherra að veita samtökunum styrkinn.
Nú snúa samtökin vörn í sókn og segja tölfræði Jafnréttissjóðs sýna kerfisbundinn halla gegn verkefnum sem snúa að körlum og drengjum. Tölurnar og ályktanirnar sem samtökin setja fram eru þeirra eigin samantekt og fullyrðingar.
