
57 ára grískur karlmaður var handtekinn á Makedonia-flugvellinum í Þessaloníku eftir að hann er sagður hafa horft á klámefni og fróað sér um borð í farþegaflugvél fyrir framan aðra farþega.
Atvikið átti sér stað síðdegis mánudaginn 5. október í innanlandsflugi frá Aþenu til Þessaloníku. Samkvæmt grískum fjölmiðlum tók maðurinn upp farsíma sinn meðan vélin var á lofti og horfði á klámefni. Í kjölfarið er hann sagður hafa byrjað að fróa sér í sæti sínu þannig að aðrir farþegar urðu varir við athæfið.
RThess greinir frá því að atvikið hafi átt sér stað um klukkan 18:30. Aðrir farþegar tóku eftir hegðun mannsins og var lögreglu gert viðvart.
Lögreglumenn úr flugvallarlögreglunni í Þessaloníku biðu mannsins þegar vélin lenti á Makedonia-flugvellinum og handtóku hann. Gríska lögreglan hefur staðfest handtökuna og segir manninn hafa gerst sekan um athafnir sem hafi brotið gegn kynferðislegri reisn samfarþega hans.
Búist er við að hann verði ákærður á næstu dögum.
