1
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

2
Heimur

Barry Manilow aflýsir tónleikum eftir að hafa gengið af sviði

3
Heimur

Sást dansa með heyrnartól skömmu áður en hann stökk inn til tígrisdýrs

4
Sport

Amma á sjötugsaldri setti heimsmet í planki

5
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

6
Heimur

Gypsy Rose minnist síðustu stundanna með Ken Urker

7
Innlent

Spyr hvort fólk styðji aftökur í Bandaríkjunum sem það fordæmir annars staðar

8
Heimur

Maður handtekinn grunaður um að hafa brennt hund lifandi á Tenerife

9
Innlent

Reyndi að komast inn í íbúð í Kópavogi, vopnaður hnífi og hamri

10
Innlent

Mótmæla laxeldi samtímis á Austurvelli og Seyðisfirði

Til baka

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

„Þetta er sama fólkið og vill alls ekki að neinn sjái hvernig samningur við ESB liti út.“

Vilhjálmur Birgisson
Vilhjálmur Birgisson, formaður SGSAtli Þór skilur ekkert í Breiðfylkingunni
Mynd: Facebook

Atli Þór Fanndal Guðlaugsson, verkefnastjóri á skrifstofu rektors við Háskólann á Bifröst, gagnrýnir í Facebook-færslu það sem hann telur vera tilraun Breiðfylkingarinnar (Starfsgreinasambandið, Efling, Samiðn og Byggiðn) til að gera lítið úr samkomulagi VR við Samtök atvinnulífsins en stéttarfélagið náði samkomulagi um framlengingu kjarasamninga á síðustu stundu á dögunum. Hann spyr hver tilgangurinn sé með því að halda áfram deilum eftir að samningar hafa náðst.

Atli Þór segist eiga erfitt með að skilja hvers vegna Breiðfylkingin leggi svo mikla áherslu á að sannfæra fólk um að samkomulag VR hafi í raun verið leikrit og að samningarnir hafi ekki falið í sér neinar verulegar umbætur. „En samt er það víst þannig að hálaunafólkið í VR er alveg ferlega glatað fólk að hafa í samfloti,“ skrifar Atli Þór og bætir við:

„Til hvers að standa í þessu? Samkomulag náðist. Það þarf að kunna að lifa á friðartímum“.

Spyr hver sigurinn eigi að vera

Atli Þór veltir því fyrir sér hvernig sigur eigi að líta út í deilunni og hvað sé í raun verið að berjast fyrir. Að hans mati náðu stéttarfélögin góðu samkomulagi miðað við aðstæður og aðgerðarpakki ríkisstjórnarinnar líti vel út.

Næsta verkefni sé að tryggja að staðið verði við það sem samið var um.

„Hvernig á sigur eiginlega að líta út í þessu stríði um hvað?“ spyr hann í færslunni.

Hann segir samningana sjálfa vera afrek sem allir geti átt hlutdeild í og kallar eftir skýringu á því hvað fáist með því að halda áfram að draga samkomulagið í efa.

Atli Þór tekur þó fram að hann sé opinn fyrir því að hann skilji einfaldlega ekki málið til fulls. Hugsanlega hafi eitthvað ekki náðst fram vegna samkomulagsins, en hann sjái ekki tilganginn með þeirri gagnrýni sem hann lýsir í færslunni.

„Kannski er eitthvað sem ekki fékkst vegna þessa en er raunverulega skil ekki tilganginn“.

Margrét Tryggvadóttir, rithöfundur og fyrrverandi þingkona, er meðal þeirra sem skrifar athugasemd við færslu Atla Þórs og bendir á ákveðna staðreynd:

„Þetta er sama fólkið og vill alls ekki að neinn sjái hvernig samningur við ESB liti út.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp
Fólk

Fimmtán ára stóð Andrea í hárinu á glæpamönnum og gafst ekki upp

„Það er þetta með hugrekkið, það er smitandi“
Spider Man gaf fyrrverandi konuna sína öðrum manni
Myndband
Heimur

Spider Man gaf fyrrverandi konuna sína öðrum manni

Sólveig Anna sakar SA um svik og segir afleiðingar fram undan
Innlent

Sólveig Anna sakar SA um svik og segir afleiðingar fram undan

Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum
Fólk

Látinn skákmeistari, dularfullur jakki og draumur sem fór úr böndunum

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum
Heimur

Sjötíu og sjö prósent líkur á eldgosi á Kanaríeyjum

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

„Mér fannst ég vera að bregðast börnunum mínum“
Fólk

„Mér fannst ég vera að bregðast börnunum mínum“

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys
Fólk

Benedikt dvaldi fjóra daga á sjúkrahúsi eftir óvenjulegt slys

„Skrímslið í Binley Woods“ sést aftur og aftur
Heimur

„Skrímslið í Binley Woods“ sést aftur og aftur

Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag
Innlent

Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu
Myndir
Fólk

Gróinn sælureitur í Vaðlaheiði með eigin skógi til sölu

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði
Innlent

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR
Innlent

Skilur ekki gagnrýni Breiðfylkingarinnar á samkomulag VR

„Þetta er sama fólkið og vill alls ekki að neinn sjái hvernig samningur við ESB liti út.“
Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu
Innlent

Pöddufullur maður svaf áfengisdauða stuttu frá heimili sínu

Sólveig Anna sakar SA um svik og segir afleiðingar fram undan
Innlent

Sólveig Anna sakar SA um svik og segir afleiðingar fram undan

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi
Innlent

Októberlægð á leiðinni til landsins sem gæti orðið sú dýpsta í áratugi

Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag
Innlent

Haustveðrið lætur finna fyrir sér í dag

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði
Innlent

Ungir drengir réðust að öðrum í Hafnarfirði

Loka auglýsingu