1
Fólk

Selja eina sérkennilegustu jörð landsins með jarðhýsum, reykkofa og þurrkhjalli

2
Innlent

Toyota á Íslandi innkallar vinsælan tengiltvinnbíl vegna slysahættu

3
Peningar

Greiddi ekki af láninu og nú vill Arion fá 84 milljónir

4
Innlent

Ungur Akureyringur geymdi milljónaágóða af fíkniefnasölu

5
Fólk

Róbert Wessman fagnaði afmælinu með ástvinum

6
Heimur

Dánarorsök systranna þriggja í Brighton opinberuð

7
Heimur

Heimili ellilífeyrisþega rifið meðan hann verslaði

8
Innlent

Dauðsfall erlendis kveikir spurningar um réttindi íslenskra sjúklinga

9
Innlent

Hrottar herjuðu á hurð Hilmars

10
Innlent

Drap föður sinn en verður ekki svipt arfinum

Til baka

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

„Ef hún er Breti, þá er ég brauðrist“

Sagal Abdi-Wali
Sagal Abdi-Wali með stuðningsmönnum sínum
Mynd: TOBY SHEPHEARD / AFP

Harðar deilur hafa brotist út í athugasemdakerfi RÚV á Facebook eftir að miðillinn greindi frá stórsigri Sagal Abdi Wali, frambjóðanda Verkamannaflokksins, í aukakosningum í Holborn og St. Pancras í Bretlandi.

Kosið var um þingsæti Keirs Starmers, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, og hlaut Abdi Wali 12.292 atkvæði. Zack Polanski, leiðtogi Græningja, varð annar með 8.928 atkvæði.

Abdi Wali kom til Bretlands aðeins sex ára gömul sem flóttamaður frá Sómalíu ásamt foreldrum sínum og fjórum bræðrum. Sigur hennar virðist hafa farið öfugt ofan í fjölmarga Íslendinga og logar athugasemdakerfi RÚV vegna málsins.

Nokkrir þeirra sem tjá sig telja kosningaúrslitin til marks um að Bretland sé að breytast til hins verra. Ísleifur Jónsson segir Breta stefna í að verða minnihluta í eigin landi en Birgir Birgisson lýsir úrslitunum sem skelfilegum og nefnir ótta við sharia lög.

Thorvaldur Skúlason tekur í sama streng og spáir því að Bretland verði áður en langt um líður komið undir sharia lög. Karl Eggertsson segir jafnframt sorglegt að fylgjast með „falli Bretlands í rauntíma“.

Bjarni Harðarson dregur breskt þjóðerni Abdi Wali í efa með beittum hætti.

„Ef hún er Breti, þá er ég brauðrist“ skrifar hann.

Fleiri lýsa miklum áhyggjum af áhrifum íslams í Bretlandi og einn segir landið hreinlega vera tapað. Aðrir tengja niðurstöðuna við innflytjendamál og fjölgun múslima í bresku samfélagi.

Slæðan kemur kommentakerfinu á hliðina

Ekki eru þó allir tilbúnir að taka undir dómsdagsspárnar og fjölmargir svara gagnrýninni fullum hálsi.

Bjarnheiður Jóhannsdóttir telur slæðu Abdi Wali augljóslega hafa mikið að segja um viðbrögðin.

„Bara af því að konan er með slæðu eru karlar uppá Íslandi að tapa sér. Ein einasta kona með slæðu og heimurinn fer á hliðina.“

Tinna Kristinsdóttir gagnrýnir sömuleiðis talsmátann og spyr hvort það fari fyrir brjóstið á mönnum að múslímsk kona með annan bakgrunn en þeir sé að ná árangri.

Ómar Bjarki Kristjánsson segir viðbrögðin bæði bjánaleg og óhugnanleg. Hann bendir á að Abdi Wali eigi að baki reynslu af opinberri þjónustu í Bretlandi og að áherslumál hennar snúist meðal annars um stöðu heimilislausra og tækifæri fyrir ungt fólk.

Stóru orðin látin falla

Álfur Logi Guðjónsson gengur lengra í gagnrýni sinni á athugasemdirnar og segir þær viðbjóðslegar.

„Ekkert nema nasistaógeð að froðufella,“ skrifar hann.

Svavar Knútur tekur í svipaðan streng og segir umræðuna einkennast af biturð og hatri á brúnu fólki.

Fleiri virðast einfaldlega furða sig á því hvert umræðan er komin. Andrés Helgason skrifar: „Þetta kommenta kerfi. Úff.“

Ingibjörg Stefánsdóttir lætur hins vegar stóru orðin eiga sig og lýsir afstöðu sinni til nýkjörnu þingkonunnar með tveimur orðum: „Flott kona.“

Það er því óhætt að segja að kosningasigur Abdi Wali hafi hitt á viðkvæma taug í íslenska Facebookheiminum. Annars vegar má þar finna dómsdagsspár um íslam, innflytjendur og framtíð Bretlands en hins vegar harða gagnrýni á það sem aðrir telja vera lítt dulda útlendingaandúð og fordóma.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni
Myndir
Heimur

Sexí á sjötugsaldri sýnir skrokkinn á ströndinni

Hrósum rignir yfir Elizabeth Hurley á Instagram
Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar
Heimur

Meintur hnífamorðingi í Malmö játar hvorki né neitar

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni
Innlent

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi
Heimur

Læknir neitar að hafa skipulagt tvö manndráp í Stokkhólmi

Farþegaþotur skullu saman
Myndband
Heimur

Farþegaþotur skullu saman

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife
Heimur

Samþykkja umdeildar reglur á vinsælum ströndum Tenerife

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum
Heimur

Ísraelar æfir yfir nýjasta friðarverðlaunahafanum

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Risk tók áhættuna alla leið í þrot
Peningar

Risk tók áhættuna alla leið í þrot

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega
Heimur

Samskipti Jane Doe við einn hinna kærðu breyttust skyndilega

Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga
Innlent

Kosningasigur múslímskrar konu kveikir hörð viðbrögð Íslendinga

„Ef hún er Breti, þá er ég brauðrist“
Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd
Innlent

Móðir of lengi að kvarta undan barnavernd

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni
Innlent

Fimm ár fyrir lífshættulega árás í Þórunnartúni

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur
Innlent

Rampar fyrir hjólastóla hjá sýslumanni uppfylltu ekki reglur

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli
Myndband
Innlent

Segja fjögur brottvísunarflug ICE hafa tekið eldsneyti á Keflavíkurflugvelli

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi
Innlent

Brúni hundamítillinn greindist á Selfossi

Loka auglýsingu