
Lögmaðurinn Sveinn Andri Sveinsson gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn fyrir þögn um ástandið á Gaza og Vesturbakkanum. Hann segir stuðning Íslands við Alþjóðlega sakamáladómstólinn mikilvægan og spyr hvort flokkurinn styðji aðgerðir Bandaríkjanna gegn dómstólnum.
Sveinn Andri birti færslu á Facebook í morgun þar sem hann gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn fyrir að tjá sig ekki um málefni Palestínu. Hann segir Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafa lagt skýra línu í gagnrýni sinni á ísraelsk stjórnvöld og ítrekað mikilvægi þess að alþjóðalög séu virt.
Sveinn Andri bendir á að Þorgerður Katrín hafi meðal annars gagnrýnt stjórnvöld í Ísrael vegna hernaðarins á Gaza og ástandsins á Vesturbakkanum. Hann segir stuðning Íslands við Alþjóðlega sakamáladómstólinn (ICC) eindreginn og mikilvægan, ekki síst fyrir smáríki á borð við Ísland.
Hann vísar jafnframt til Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sem heimsótti Ísland á dögunum, og þess sem hann telur vera fyrirhugaðar harðari aðgerðir bandarískra stjórnvalda gegn dómstólnum og einstökum dómurum hans.
Spyr um afstöðu Sjálfstæðisflokksins
Í færslunni segir Sveinn Andri að Sjálfstæðisflokkurinn hafi lengi lagt áherslu á hlutverk sitt í mótun utanríkis- og alþjóðastefnu Íslands. Hann telur því þögn flokksins um Palestínu vekja spurningar.
Hann beinir sérstaklega sjónum sínum að forystu flokksins og nefnir Hannes Hólmstein Gissurarson, sem hann kallar hugmyndafræðing flokksins. Sveinn Andri segir Hannes hafa lýst stuðningi við það sem hann kallar þjóðernishreinsanir á Gaza og Vesturbakkanum.
„Hvar er Sjálfstæðisflokkurinn? Hafa sjálfstæðismenn enga afstöðu til Gaza og Vesturbakkans?“ spyr Sveinn Andri í færslunni.
Hann spyr jafnframt hvort flokksmenn styðji Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og aðgerðir bandarískra stjórnvalda gegn Alþjóðlega sakamáladómstólnum.
„Styðja sjálfstæðismenn glæpamanninn Netanyahu? Styðja sjálfstæðismenn aðgerðir bandarískra stjórnvalda gegn ICC?“
