Fara í efni
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
„Fer svo heim að taka upp podcast þar sem hann titlar sig Ritstjórann“
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir
Sport

Hver er Theodór Elmar?

Innlent

Myglu­eitur í hveiti

Fólk

Notalegt fjöl­skyldu­hús með nægu rými úti og inni til sölu

Pólitík

Segir Ísland úti­loka einmitt þá inn­flytj­endur sem landið þarf á að halda

Heimur

Breskir grínistar héldu leyni­lega lista yfir kyn­ferð­is­leg rán­dýr

Skoðun

Nakin og blaut í Reyn­is­fjöru

Pólitík

Segir trygg­inga­fé­lögin „gambla“ með fé úr bóta­sjóðum

Fólk

Vigtuð viku­lega og sett á mat­ar­plan aðeins tíu ára gömul

Innlent

Innkalla leik­fang úr Tiger vegna köfn­un­ar­hættu

Heimur

Nýtt lyf í töflu­formi vekur vonir í bar­átt­unni við briskrabba­mein

Sigríður sótti að Þorgerði þremur árum eftir árásirnar á Ísrael

Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúm­lega 74 þús­und Palest­ínu­menn

Sigríður Á. Andersen
Sigríður Á. Andersen Mynd: Víkingur

Sigríður Á. Andersen, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði eftir því á Alþingi í dag að utan­rík­is­ráð­herra Íslands tjáði sig um fréttir þess efnis að mynd af ráð­herr­anum hefði birst á skiltum í Teheran í Íran.

Sigríður ræddi málið undir liðnum störf þings­ins og hóf mál sitt á að minn­ast árásanna á Ísrael 7. októ­ber 2023. Hún sagði nákvæm­lega þrjú ár liðin frá því að heim­ur­inn hefði vaknað við hryll­ings­fréttir af árás­unum.

„Það eru nákvæm­lega þrjú ár síðan heim­ur­inn vakn­aði upp við hryll­ings­fréttir frá Ísrael,“ sagði Sigríður og vís­aði til árásanna þar sem um 1.200 manns voru drepnir. Hún sagði Ísrael hafa verið í stríði frá þeim degi og kvaðst von­ast til þess að nú sæi fyrir end­ann á átök­unum. Athygli vekur að Sigríður tók ekki fram að síðan þá hafi her Ísrael drepið rúm­lega 74 þús­und Palest­ínu­menn sam­kvæmt Reuters og AP.

Þá eru Amnesty International, ísra­elsku mann­rétt­inda­sam­tökin B'Tselem og óháð rann­sókn­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna meðal þeirra sem hafa kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Ísrael hafi framið þjóð­ar­morð á Gaza. Alþjóða­dóm­stóll­inn hefur hins vegar ekki kveðið upp end­an­legan dóm um hvort Ísrael beri laga­lega ábyrgð á þjóð­ar­morði.“

Gagnrýnir viðbrögð utanríkisráðherra

Sigríður beindi því næst sjónum sínum að fram­göngu Þor­gerðar Katrín Gunn­ars­dóttur, utan­rík­is­ráð­herra Íslands, gagn­vart Ísrael. Hún vís­aði til nýlegs þings Sam­ein­uðu þjóð­anna og sagði ráð­herr­ann hafa séð sig knú­inn til að gagn­rýna for­sæt­is­ráð­herra Ísraels vegna ákalls hans um að full­trúar ríkja sætu undir ræðu hans.

„Á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna á dög­unum fann hæstv. utan­rík­is­ráð­herra Íslands sig knú­inn til þess að atyrða for­sæt­is­ráð­herra Ísraels fyrir það eitt að vera með ákall um það á þingi Sam­ein­uðu þjóð­anna að full­trúar ríkja Sam­ein­uðu þjóð­anna sætu undir ræðu hans. Hæstv. utan­rík­is­ráð­herra Íslands sá sig knú­inn til að atyrða for­sæt­is­ráð­herra Ísraels fyrir þetta.“

Þá vék Sigríður að fréttum um að utan­rík­is­ráð­herra Íslands hefði birst á skiltum í Teheran. Hún lýsti undrun sinni yfir mál­inu og sagði Íran vera helsta stuðn­ings­ríki Hamas.

„Um helg­ina vakn­aði ég upp við frétt sem ég trúði jafn illa og ég trúði hryll­ings­frétt­unum fyrir þremur árum,“ sagði Sigríður og vís­aði þar til skilt­anna.

Hún sagði Þorgerði Katrínu ekki hafa viljað tjá sig um málið og kall­aði eftir því að það yrði gert.

„Ég kalla eftir því að utan­rík­is­ráð­herra Íslands tjái sig um þetta mál,“ sagði Sigríður.

Hún lauk máli sínu með harðri gagn­rýni og sagð­ist sjálf ekki myndu sætta sig við að mynd af henni væri notuð með þessum hætti í Íran.

„Sjálf myndi ég ekki una mér hvíldar fyrr en þetta skilti í Íran, hjá klerka­stjórn­inni og þeim brjál­æð­ingum sem þar stjórna, með ljós­mynd af sjálfri mér hefði verið tekið niður.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið í vikunni

Heimur

Banda­rísk stjórn­völd birta þrjú ný mynd­skeið af óþekktum fljúg­andi fyr­ir­bærum

Upptökurnar eru frá Mið-Austurlöndum og ná yfir árin 2020 til 2026. Varnarmálaráðuneytið segir enn óljóst hvað þær sýni.
Heimur

Maður stung­inn í Las Palmas

Heimur

Ljósmynd af logum ræsti sjálf­virkt slök­kvikerfi

Heimur

Macaulay Culkin snýr aftur sem Kevin McCallister

Innlent

Tölvu­þrjót­arnir sem réð­ust á 1984 skemmdu sjö vef­síður tengdar Palest­ínu

Pólitík

„Af tvennu illu er skárra að böð­ull­inn sé ekki í felu­litum frjáls­lyndis“

Viðreisn mælist með 9,2 prósenta fylgi og Miðflokkurinn með 15,1 prósent. Atli Þór segir Miðflokkinn „hreinlegri“ kost.
  • Sigríður vill kanna hvort Ísland geti tekið þátt í brott­far­ar­stöð í Rúanda

  • Ást­hildur Lóa vill beita skyldu­sparn­aði gegn verð­bólgu

  • Sagði frá kær­leik­anum sem hún finnur á Alþingi

  • „Það er eng­inn öruggur í sam­fé­lagi þar sem stjórn­málin leit­ast við að keppa í grimmd“

  • Hæddist að Snorra og Mið­flokknum í pontu