
Harðar deilur brutust út á Alþingi í dag um skriflegt samkomulag þingflokksformanna frá því í vor og reglugerð sem innviðaráðherra setti í september. Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu ríkisstjórnina um að hafa brotið samkomulagið og vöruðu við því að traust milli stjórnar og stjórnarandstöðu væri í hættu.
Stjórnarliðar höfnuðu því hins vegar að samkomulagið hefði verið brotið og sögðu það hafa varðað fyrirhugaðar lagabreytingar en ekki heimild ráðherra til reglugerðarsetningar.
Ólafur Adolfsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hóf umræðuna og vísaði til samkomulags sem þingflokksformenn undirrituðu í apríl. Samkvæmt því hefðu 2.700 tonn bæst við strandveiðar gegn því að ekki yrði hróflað við línuívilnun eða rækju og skelbótum án samráðs.
„Hvað eigum við hér í stjórnarandstöðunni að gera þegar samningar þessa eðlis eru ekki efndir, skriflegir samningar, og ráðherra ætlar sér hreinlega ekki að gera neinar ráðstafanir til að breyta þessu máli?“ spurði Ólafur.
Stefán Vagn Stefánsson, þingmaður Framsóknarflokksins, tók undir gagnrýnina og sagðist hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum.
„Það er dapurlegt og sorglegt að upplifa það að það sé ekki gert í þessu máli,“ sagði Stefán um að samkomulagið hefði að hans mati ekki verið virt. Hann sagði málið jafnframt líklegt til að gera samstarf þingflokksformanna erfiðara.
Bergþór Ólason, þingmaður Miðflokksins, sagði stöðuna grafalvarlega og kallaði eftir því að forseti Alþingis gripi inn í.
„Í eina tíð var hægt að semja munnlega um frágang og framgang mála. Síðan hefur þurft að gera það skriflega á seinni tímum en nú er skyndilega komin upp sú staða að skriflegt samkomulag þingflokksformanna um fyrirkomulag og framgang til lúkningar máls heldur ekki,“ sagði Bergþór.
Jens Garðar Helgason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gekk enn lengra og spurði hvort þingmenn þyrftu framvegis að kalla til lögfræðinga við gerð samkomulaga.
„Er það orðið þannig, virðulegur forseti, að við þinglok þurfi hér að fara að mæta með lögfræðinga eða þarf ríkislögmaður eða umboðsmaður Alþingis að vera viðstaddur til að votta?“ spurði Jens og bætti við: „Við erum komin á vondan stað.“
„Reglugerðin alveg innan samkomulagsins“
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, hafnaði þessari túlkun málsins. Hann benti á að fyrirhugað væri að ræða málið á opnum fundi atvinnuveganefndar.
„Ef skriflega samkomulagið er lesið þá er nokkuð ljóst að reglugerðin sem var sett er alveg innan samkomulagsins,“ sagði Sigurjón. Hann viðurkenndi þó að samráðið hefði mátt vera meira: „Mögulega hefði ráðherra átt að hafa samráð áður en reglugerðin var sett.“
Ingibjörg Davíðsdóttir, þingmaður Miðflokksins, sagði þá stöðu óþolandi að skriflegt samkomulag héldi ekki.
„Ef það er skrifað undir samkomulag þá ætlast ég til þess að það haldi. Að öðrum kosti er ekki hægt að semja um nokkurn skapaðan hlut við þann meiri hluta sem er í þinginu,“ sagði Ingibjörg og kallaði eftir því að ráðherra drægi reglugerðina til baka.
Stefán Vagn steig aftur í pontu og sagði fyrirhugaða umfjöllun atvinnuveganefndar ekki skipta máli í deilunni.
„Þetta fjallar nefnilega um að standa við gefin orð og samninga og skuldbindingar, skriflega í þessu tilfelli,“ sagði Stefán. Hann sagði öllum sem hefðu tekið þátt í gerð samkomulagsins hafa verið ljóst hvað í því fælist.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins, tók næst til máls og greip sérstaklega á lofti orð Sigurjóns um að ráðherra hefði mögulega átt að hafa samráð.
„Hann átti hreinlega að gera það í ljósi samkomulags sem hér var sett undir lok síðasta þings,“ sagði Sigríður. „Ráðherrar verða að hafa það í huga að þeir eru ekkert eyland hér með sín mál á þinginu.“
Guðmundur Ari Sigurjónsson, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, sagði alvarlegt að þingmenn upplifðu að samkomulag hefði verið brotið en hafnaði því að reglugerðarsetningin félli undir samkomulagið.
„Það er nóg að það sé upplifun fólks að samkomulag hafi verið brotið, það er miður, því traust milli þingflokksformanna skiptir miklu máli,“ sagði Guðmundur Ari.
Hann sagði samkomulagið hafa snúist um lagabreytingar og fyrirhugað frumvarp. „Samkomulagið sneri ekki að reglugerð,“ sagði hann og bætti við að boðað hefði verið til þess samráðsfundar sem kveðið væri á um.
Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sagði óvenjulegt að samkomulög þingflokksformanna væru yfirleitt sett á blað. Almennt hefði verið hægt að treysta munnlegum samkomulögum.
„En ef við erum komin á þann stað að það er ekki hægt að treysta því sem er skrifað, hvernig ætla menn þá að vinna hér áfram?“ spurði Guðlaugur.
Ólafur Adolfsson steig þá aftur í pontu og mótmælti túlkun Guðmundar Ara harðlega. Hann sagði óhugsandi að samkomulagið mætti túlka þannig að ráðherra gæti skömmu síðar breytt rækju og skelbótum og línuívilnun með reglugerð.
„Það vissu allir sem voru á þessum fundi um hvað væri verið að semja. Það vissu allir þingflokksformenn nákvæmlega um hvað menn voru að semja,“ sagði Ólafur og spurði hvort ekki hefði verið skynsamlegra að „biðjast bara einfaldlega afsökunar á þessari dellu í ráðherra“.
Sigurjón Þórðarson svaraði og ítrekaði að samkomulagið hefði fyrst og fremst varðað frumvarp og lagabreytingu.
„Ef maður les samkomulagið eins og það er skrifað stendur það upp úr,“ sagði Sigurjón. Hann spurði jafnframt hvers vegna stjórnarandstaðan legði svo mikla áherslu á að viðhalda bótum vegna áfalla í skel og rækjuveiðum fyrir um aldarfjórðungi.
Sigurjón viðurkenndi þó á ný að betur hefði mátt standa að samráði. „Ég ítreka að það hefði farið betur á því ef samráð hefði verið haft áður en reglugerðin var sett.“
„Við erum komin í heim upplifunarstjórnmála“
Guðlaugur Þór Þórðarson steig aftur í pontu og sagði kjarna málsins ekki vera efnislegt innihald reglugerðarinnar heldur traust milli flokka.
„Það sem við erum að ræða er í hvaða stöðu Alþingi Íslendinga er þegar ekki er hægt að treysta skriflegum samningum við þinglok,“ sagði Guðlaugur. „Nú er það búið. Það er það sem er langalvarlegast í þessu.“
Bergþór Ólason tók næstur til máls og sagði stjórnarandstöðuna hafa staðið við sinn hluta samkomulagsins en stjórnarflokkana ekki.
„Staðan hvað slík samtöl varðar er auðvitað gjörbreytt ef þetta verður niðurstaðan,“ sagði Bergþór og kallaði eftir aðkomu forseta Alþingis. „Ef menn ætla að koma sér á þann stað að skriflegt samkomulag, skriflegir samningar, haldi ekki þá verð ég bara að biðja um aðstoð virðulegs forseta við að finna með hvaða hætti við í stjórnarandstöðunni eigum að geta treyst stjórnarflokkunum aftur.“
Jens Garðar Helgason kom þá aftur í pontu og beindi spjótum sínum að orðalagi stjórnarliða um „upplifun“ þingmanna.
„Við erum komin í heim upplifunarstjórnmála,“ sagði Jens. Hann spurði jafnframt: „Hvernig í ósköpunum, virðulegur forseti, eigum við í stjórnarandstöðu í framhaldinu að semja við upplifunarríkisstjórn þar sem upplifunarstjórnmál eru það sem ræður för?“
Sigríður Á. Andersen tók aftur til máls og kallaði eftir nánari skýringum frá Guðmundi Ara vegna ummæla sem hún sagði fela í sér vísun til þess að munnleg samkomulög hefðu áður verið brotin.
„Mér finnst það ómaklegt að koma hér upp í ræðustól Alþingis og vísa með óljósum hætti til þess að menn hafi gengið á bak orða sinna í munnlegum samkomulögum í annars ágætu samstarfi sem þingflokksformenn hafa átt á þessu kjörtímabili saman,“ sagði Sigríður.
Bryndís Haraldsdóttir, forseti Alþingis, batt loks enda á umræðuna með stuttri yfirlýsingu.
„Forseti vill við þetta tilefni segja að þessum athugasemdum hefur verið komið skýrt til skila og forseti ber metnað til þess að traust ríki á milli flokka sem hér starfa.“
