1
Fólk

Einstök paradís úti á landi komin á sölu

2
Innlent

Íhugar að fara í mál við Sigfús

3
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

4
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

5
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

6
Innlent

Draumur Hannesar rættist ekki í Brasilíu

7
Heimur

Pentagon afhjúpar leyniskjöl um Roswell

8
Heimur

Segir dularfulla skepnu hafa náðst á myndavél í Mexíkó

9
Skoðun

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

10
Innlent

Sveinn Rúnar gagnrýnir viðbrögð við stuðningi Íslands við Úkraínu

Til baka

Varaþingmaður sakar Þorgerði Katrínu um að „slátra milljarðafyrirtæki“

„Við höfum hætt öllum viðskiptum við Rússa sem hefur kostað okkur milljarða“

Hilmar Garðars Þorsteinsson
Hilmar Garðars ÞorsteinssonTjáði sig á Alþingi fyrr í dag.
Mynd: Miðflokkurinn

Hilmar Garðars Þorsteinsson, varaþingmaður Miðflokksins, gagnrýndi utanríkisstefnu Íslands í umræðum um störf þingsins á Alþingi í dag. Hann sagði stjórnvöld ganga of langt í aðgerðum gagnvart Rússlandi og taka of lítið mið af íslenskum hagsmunum.

„Utanríkisstefna Íslands tekur nú iðulega sáralítið mið af hagsmunum þjóðarinnar og þetta þarf að breytast. Það er kominn tími til að gæta á ný íslenskra hagsmuna fyrst og síðast.“

Segir Ísland hafa notið mikils trausts

Hilmar minnti á að 11. október yrðu fjörutíu ár frá upphafi leiðtogafundar Mikhails Gorbachevs og Ronalds Reagans í Höfða. Hann sagði fundinn hafa skapað traust milli leiðtoganna og Ísland hafa haft mikinn sóma af honum.

„Á þessum tíma nutu Íslendingar mikils trausts á alþjóðavettvangi og áttu í vinsamlegum samskiptum við þjóðir bæði austan tjalds og vestan. Ólíklegt er að Ísland hefði verið valið sem fundarstaður ef svo hefði ekki verið.“

Að sögn Hilmars hefði verið hægt að gagnrýna báða leiðtogana en íslensk stjórnvöld hefðu sýnt þeim virðingu án þess að styðja þar með allar athafnir ríkja þeirra.

„Við höfðum um áratugi átt mikil viðskipti við báðar þessar þjóðir og sýndum leiðtogum þeirra staka virðingu án þess að í því fælist stuðningur við hvað eina sem ríki þeirra höfðu tekið sér fyrir hendur.“

Hann taldi aðra nálgun einkenna utanríkisstefnuna nú.

„Hún virðist vera þannig að ef komið er auga á eitthvert óréttlæti í heiminum er farið af stað og gripið til hörðustu aðgerða sem völ er á, jafnvel umfram aðrar vestrænar þjóðir.“

Gagnrýnir aðgerðir gagnvart Rússlandi

Hilmar hélt því fram að viðskiptastefnan gagnvart Rússlandi hefði kostað Íslendinga milljarða.

„Við höfum hætt öllum viðskiptum við Rússa sem hefur kostað okkur milljarða meðan aðrar þjóðir Evrópu hafa haldið áfram margvíslegum viðskiptum við þá.“

Hann nefndi gjaldþrot Skagans á Akranesi í því samhengi og sakaði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra Íslands, um að hafa ákveðið að „slátra milljarðafyrirtækinu Vélfagi vegna lítt sannaðra tengsla við Rússland“.

Þá gagnrýndi Hilmar að starfsemi sendiráðs Íslands í Moskvu hefði verið hætt og gerði athugasemdir við skýringar sem hann vísaði til í ræðunni.

„Ekki bætir um sú eftiráskýring að það hafi ekki síst verið gert vegna kjötbita sem fundist hafi í kæliskáp grænmetisætu starfandi í sendiráðinu.“

Í lok ræðunnar ítrekaði Hilmar ósk sína um breytta forgangsröðun í utanríkismálum.

„Ég lýsi yfir þeirri von minni að svo megi verða hið allra fyrsta og að Íslandi verði ekki flækt í mál sem það getur ekki haft raunhæf áhrif á til gagns.“

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit
Fólk

Sex gullnar reglur fyrir einhleypa í makaleit

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum
Innlent

Sögufrægur álfasteinn fjarlægður úr Ármúlanum

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu
Heimur

Að minnsta kosti 58 manns drepnir í árás vopnaðra manna á þorp í Nígeríu

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á
Heimur

Leikmenn Lokomotiv Moscow voru í lest sem Úkraínuher réðist á

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu
Innlent

Forritari hafði betur gegn fyrrum vinnuveitanda í milljónalaunadeilu

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands
Landið

Breskur stórmiðill velur fimm stórkostlegustu fossa Íslands

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds
Heimur

Mæðgur létust þegar tveir ökumenn kepptu í kappakstri á götum Leeds

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví
Innlent

Hæstiréttur opnar dyrnar fyrir uppgjör um sóttkví

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“
Skoðun

Gunnlaugur Stefánsson

„Tekjurnar af ánni borga áburðinn á túnin“

Þjónustan skorin niður hjá Strætó
Innlent

Þjónustan skorin niður hjá Strætó

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun
Innlent

Leit að líkamsleifum Lúðvíks hefst í Grindavík á morgun

Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula
Pólitík

Kristinn Hrafnsson fagnar sigri Lula

„Það sendir vonarglætu í heim þar sem mennskan er á undanhaldi“
Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar
Pólitík

Bláa vélin hikstar undir stjórn Guðrúnar

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina
Pólitík

Mansal og karlmennska fá stærstu styrkina

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn
Pólitík

Bæjarstjóri Suðurnesjabæjar segir fyrstu 75 dagana hafa verið eldskírn

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“
Pólitík

„Landsbyggðarskattur, kaldar kveðjur frá ríkisstjórninni!“

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“
Pólitík

„Nærtækari skýring er að Hildur og hennar fólk kunni ekki að koma frá sér skiljanlegum texta“

Loka auglýsingu