
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar foreldra og forráðamenn við VPN stillingu sem hundruð ólögráða ungmenna eru talin hafa sett upp í farsímum sínum í tengslum við kaup á fölsuðum rafrænum skilríkjum.
Einn hefur verið handtekinn vegna málsins og er grunaður um að hafa selt hundruðum ungmenna fölsuð skilríki. Meðal þess sem boðið var upp á var snjallsímaforrit sem líktist island.is og svokölluð „Island Surge VPN“ stilling sem gat breytt kennitölu sem birtist á island.is og í netbönkum.
Lögregla segir að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN stillinguna. Með uppsetningu hennar er síminn látinn treysta öryggisskírteini frá seljanda þjónustunnar og öll netumferð símans fer í gegnum netþjóna hans.
Það þýðir að viðkomandi getur mögulega lesið og breytt netumferð notandans áður en hún berst á áfangastað. Lögregla líkir þessu við að ókunnugum sé afhentur aukalykill að pósthólfi með heimild til að lesa og breyta því sem þar fer um.
Foreldrar eru hvattir til að ræða netöryggi og fölsuð skilríki við börn sín. Þá eru söluaðilar áfengis og nikótíns hvattir til að treysta ekki eingöngu á island.is við aldursstaðfestingu heldur óska eftir hefðbundnum persónuskilríkjum.
