
Rósa Guðbjartsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, mælti á Alþingi í gær fyrir frumvarpi um afnám erfðafjárskatts. Harðar orðahnippingar urðu í kjölfarið milli hennar og Guðmundar Ara Sigurjónssonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um áhrif tillögunnar á ríkissjóð og hverjir myndu helst njóta góðs af breytingunni.
Rósa sagði erfðafjárskatt fela í sér tvísköttun á verðmætum sem fólk hefði þegar greitt skatta af á lífsleiðinni. Hún sagði skattinn meðal annars geta komið illa niður á fjölskyldum við kynslóðaskipti fyrirtækja, þegar verðmæti væru bundin í fasteignum, tækjum og rekstri en ekki reiðufé.
„Að mínu mati er hér fyrst og fremst um óréttláta tvísköttun að ræða og er afnám erfðafjárskatts því mikið réttlætismál,“ sagði Rósa.
Hún hélt því jafnframt fram að skatturinn bitnaði ekki eingöngu á efnamestu einstaklingum landsins heldur einnig venjulegum fjölskyldum og litlum og meðalstórum fyrirtækjum. Þá vísaði hún til þess að Svíþjóð og Noregur hefðu afnumið erfðafjárskatt.
Segir skattalækkunina óútfærða
Guðmundur Ari gagnrýndi frumvarpið harðlega og sagði það fela í sér óútfærða skattalækkun upp á milljarða króna á sama tíma og ríkisstjórnin væri að vinna að hallalausum fjárlögum. Hann sagði tillöguna fyrst og fremst nýtast þeim sem ættu mest.
„Þú þarft að tryggja að þú eigir fyrir þeirri þjónustu sem þú ert að veita,“ sagði Guðmundur Ari og benti á að þörf væri á aukinni mönnun í heilbrigðiskerfinu, fleiri lögregluþjónum og stuðningi við menntakerfið.
Hann spurði jafnframt hvort fleiri tillögur væru væntanlegar frá Sjálfstæðisflokknum sem myndu lækka tekjur ríkissjóðs án þess að útfært væri hvernig mæta ætti tekjutapinu.
Sakar ríkisstjórnina um „blygðunarlausa skattsýki“
Rósa svaraði gagnrýninni af hörku og vísaði til efnahagstillagna Sjálfstæðisflokksins. Hún sakaði ríkisstjórnina um að vera upptekna af skattheimtu og sagði erfðafjárskattinn koma sérstaklega illa niður á venjulegum fjölskyldum.
„Þetta er ekkert annað en skattsýki þessarar ríkisstjórnar og hún er blygðunarlaus,“ sagði Rósa.
Hún sagði efnameira fólk oft hafa meiri möguleika á að skipuleggja eignir sínar með þeim hætti að erfðafjárskattur yrði minni, á meðan slíkar leiðir stæðu almennum fjölskyldum síður til boða. Hún sagði óréttlátt að fólk gæti þurft að taka lán eða selja eignir eftir andlát foreldra til þess að standa undir skattgreiðslunni.
Rósa lagði til að frumvarpinu yrði vísað til annarrar umræðu og efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis.
