1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

9
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

10
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Til baka

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Fjölmiðlamaðurinn opnar sig um fordóma sína gegn sixpensurum

Illugi Jökulsson
Illugi JökulssonIlluga er illa við sixpensara

Illugi Jökulsson segist í Facebook-færslu í gamansömum tón, hafa frá barnæsku haft óbeit á sixpensurum og talið þá sem ganga með slíka hatta bæði vitlausari og leiðinlegri en aðra menn. Hann brá þó út af vananum eftir óvæntan fund við unga fjölskyldu fyrir utan Krónuna.

Illugi Jökulsson, fjölmiðlamaður og rithöfundur, segir í Facebook-færslu að hann hafi aldrei þolað sixpensara og hafi frá því hann var strákur verið sannfærður um að karlmenn sem ganga með slíka hatta séu „yfirleitt bæði vitlausari og leiðinlegri en aðrir menn“.

Hann segist ekki hafa minnstu hugmynd um hvernig þessi skoðun hafi fest rætur í huga hans. Karlarnir í sveitinni sem gengu gjarnan með sixpensara hafi nefnilega „sannarlega flestallir [verið] ágætis kallar“ og enginn þeirra hafi gert honum neitt svo hann muni.

„En ekkert fékk haggað þessari skoðun minni,“ skrifar Illugi og bætir við að fordómarnir hafi jafnvel haft áhrif á samband hans við Hrafn bróður sinn heitinn þegar sá síðarnefndi tók upp á því að ganga með sixpensara.

Ljótur sixpensari fyrir utan Krónuna

Þegar Illugi kom út úr Krónunni á dögunum rakst ungur maður með sixpensara næstum því utan í hann. Viðbrögð Illuga voru samkvæmt eigin lýsingu fyrirsjáanleg.

„Þá bjó ég mig strax undir að hafa á honum mestu fyrirlitningu,“ skrifar hann.

Ekki bætti úr skák að höfuðfat mannsins var að hans mati sérlega ljótt.

„Hann var með ljótustu sort af sixpensara á höfðinu, stórköflóttan og með uppbrettu deri, alveg ólýsanlega ljótt höfuðfat, það segi ég satt.“

Illugi viðurkennir að hafa hugsað með sér: „Hæfði þessum bjána vel.“

En þá tók sagan óvænta stefnu. Illugi áttaði sig á því að ástæðan fyrir því að maðurinn hafði næstum rekist utan í hann var sú að hann var að taka í hönd sjö ára sonar síns. Drengurinn hélt jafnframt í hönd móður sinnar.

„Drengurinn skríkti yfir einhverju sem pabbi hans sagði og mamman brosti til mín,“ segir Illugi.

Fjölskyldan gekk síðan syngjandi burt og breytti þar með viðhorfi Illuga til unga mannsins, að minnsta kosti að þessu sinni.

„Ég ákvað að fyrirgefa unga manninum sixpensarann,“ skrifar Illugi að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Jón Gnarr sagður yfirgefa Viðreisn
Pólitík

Jón Gnarr sagður yfirgefa Viðreisn

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran
Heimur

Tveir dæmdir í fangelsi í Þýskalandi fyrir að skipuleggja árásir fyrir Íran

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann
Pólitík

Rósa segir ríkið seilast í ævistarf fólks eftir dauðann

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Pólitík

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða
Pólitík

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna
Myndband
Heimur

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann
Fólk

Illugi fyrirgefur ungum föður sixpensarann

Fjölmiðlamaðurinn opnar sig um fordóma sína gegn sixpensurum
Sorgin breytti sýn Andreu á lífið
Fólk

Sorgin breytti sýn Andreu á lífið

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri
Fólk

Fimm hlutir sem þú ættir aldrei að gera á almannafæri

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu
Myndir
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu
Myndir
Fólk

Eitt dýrasta einbýli landsbyggðarinnar til sölu

Loka auglýsingu