
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur auglýst laust til umsóknar nýtt embætti forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir. Stofnunin tekur formlega til starfa 1. apríl 2027, samhliða gildistöku nýrra laga um framkvæmd öryggisráðstafana samkvæmt dómsúrlausn.
Um er að ræða nýtt embætti en forstjóranum verður falið að leiða uppbyggingu og starfsemi miðstöðvarinnar.
Miðstöðin mun sjá um framkvæmd öryggisráðstafana og taka við dómum og úrskurðum um slíkar ráðstafanir frá ríkissaksóknara til framkvæmdar og skráningar.
Þá mun stofnunin hafa eftirlit og umsjón með öryggisgæslustöðum sem starfa á hennar vegum og einstaklingum sem gert er að sæta vægari öryggisráðstöfunum. Einnig verður miðstöðinni falið eftirlit með öryggisgæslustöðum sem reknir eru samkvæmt samningum við sveitarfélög eða einkaaðila.
Miðstöðin mun jafnframt veita þeim sem þjónusta skjólstæðinga faglegan stuðning og ráðgjöf auk þess að sinna fræðslu um starfsemina og málefni skjólstæðinga hennar.
