Fara í efni
Grímur Grímsson
„Afleiðingar ofbeldis og hótana um slíkt eru þær að óöryggi eykst"
Grímur Grímsson
Innlent

Stór nöfn vilja upp á RÚV

Frétt

Allir skip­verjarnir hífðir upp úr sjónum

Fólk

Rán Flygenring opnar sig um krabbameins­greiningu

Fólk

Sex hlutir sem sérfræðingar mæla með að þrífa fyrir jóla­hátíðina

Fólk

Selja risa einbýli á spottprís

Frétt

Kapp­sigling til hjálpar skip­verjum

Pólitík

Öll teppi voru búin á bráða­móttökunni á Akureyri

Fólk

Fimm svefn­herbergi og bílaplan fyrir ættar­mótið

Heimur

Tveir menn hafa látist við íbúðar­skoðun í sama turni á sex árum

Innlent

Fangi kvartaði eftir að sambýlis­konu hans var bannað að heimsækja hann

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Húsið var upphaf­lega reist árið 1883

Bjarkargata 4
Bjark­ar­gata 4

Sögufrægt og svipmikið einbýlishús við Bjarkar­götu 4 í Reykjavík hefur verið sett á sölu. Húsið á sér óvenju­lega sögu en það var upphaf­lega reist árið 1883 við Thorvaldsensstræti 6 og flutt á núverandi stað árið 1930.

Eignin er alls 323 fermetrar að stærð samkvæmt fasteigna­skrá. Þar af er íbúðar­húsið 302,6 fermetrar og bílskúr 20,4 fermetrar. Húsið stendur á 609,5 fermetra gróinni lóð skammt frá Tjörninni og Hljóm­skála­garðinum.

Húsið er á tveimur hæðum auk kjallara og hefur að sögn fasteigna­sala verið vel við haldið. Núverandi eigandi hefur búið þar frá árinu 1996 og hefur við endur­bætur lagt áherslu á að varðveita upprunalegt yfirbragð og karakter hússins.

Sérstaka athygli vekur viðar­klætt stigahús með panil­klæðningum á veggjum og lofti ásamt viðar­stiga og handriðum. Stórir gluggar og bjartar stofur einkenna einnig húsið.

Á fyrstu hæð eru tvö herbergi, eldhús, borðstofa, stofa og gestasal­erni. Þaðan er útgengt að bakhlið hússins og niður í garð. Á efri hæð eru þrjú herbergi, þar á meðal hjóna­herbergi, auk baðherbergis og svala.

Í kjallaranum er meðal annars stofa eða herbergi, eldhús, salerni með sturtu, þvotta­herbergi, geymsla og vinnu­herbergi. Kjallarinn er með sérinngangi og því er möguleiki á að útbúa þar sérstaka útleigu­einingu.

Saga hússins nær aftur til 19. aldar. Samkvæmt samantekt um sögu þess var það reist árið 1883 við Thorvaldsensstræti og notað sem lyfja­gerðarhús í tengslum við Reykja­víkurapótek. Húsið var síðan flutt að Bjarkar­götu árið 1930, sem jafnframt er skráð byggingarár þess í fasteigna­skrá.

Ekki er gefið upp fast söluverð fyrir eignina heldur er óskað eftir tilboði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Mannlíf áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Innlent

Gleymdi klukkunni og fékk að finna fyrir tímans tönn

Konan segir synjunina tefja nám sitt um að minnsta kosti ár.
Innlent

Góðkunningi lögreglu tvívegis með vopn á sér í Reykjavík

Innlent

Mosfellingur fékk ársfangelsi fyrir ítrekuð brot eftir flótta

Innlent

Útgerð Jökuls heitir skip­verjum og aðstand­endum stuðningi

Innlent

Rauði krossinn veitir sálrænan stuðning

Fólk

Fegurðar­drottningin Karen Ósk stofnar félag um stafrænar eignir

Árið 2022 sagðist hún sjá sig í háskóla og pólitík eftir fimm ár. Nú hefur hún stofnað einkahlutafélag með fjölþættan tilgang.

Átta mistök sem fólk ætti að forðast ef það flýgur um jólin

Reynslu­bolti úr frétta­heiminum stofnar eigið fyrirtæki

Við Blátún bíða bjartar stofur og skjólsæll garður

Áhorf­endur grunaði ekki hvernig Sölku Sól leið á meðan hún söng

„Ég er orðinn leiður á að vera veikur“