
Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, segir norðurslóðir vera eitt mikilvægasta svæði heims þegar kemur að umhverfismálum, öryggi og alþjóðasamvinnu. Hann segir brýnt að Ísland haldi áfram að leggja áherslu á frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun á svæðinu.
Eiríkur ræddi málefni norðurslóða undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Tilefnið var meðal annars Arctic Circle, Hringborð norðurslóða, sem fór fram í Hörpu í síðustu viku.
„Norðurslóðir eru að mínu mati eitt af mikilvægustu svæðum heims, m.a. þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum og alþjóðasamvinnu,“ sagði Eiríkur.
Áhrif loftslagsbreytinga áberandi
Hann sagði hagsmuni Íslands á norðurslóðum skýra samkvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur samþykkt. Markmiðið væri að tryggja frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun ásamt því að virða alþjóðalög og réttindi þeirra sem búa á svæðinu.
Eiríkur benti sérstaklega á að áhrif loftslagsbreytinga væru mjög sýnileg á norðurslóðum. Bráðnun íss, breytingar á lífríki og aukin umsvif manna kölluðu á öflugt alþjóðlegt samstarf. Ísland legði jafnframt mikla áherslu á vísindarannsóknir, náttúruvernd og ábyrga nýtingu auðlinda.
„Vernd umhverfisins er ekki aðeins loftslagsmál heldur einnig grundvallaratriði í langtímaöryggi svæðisins,“ sagði hann.
Aukin spenna og hernaðarlegir hagsmunir
Eiríkur sagði jafnframt að áhersla á öryggis- og varnarmál á norðurslóðum hefði aukist. Alþjóðleg spenna og hernaðarlegir hagsmunir stórvelda hefðu meðal annars aukið umræðu um nauðsyn þess að efla viðbúnað, eftirlit, leit og björgun og vernd mikilvægra innviða.
Hann sagði Ísland byggja öryggi sitt á alþjóðlegu samstarfi, meðal annars innan NATO, en mikilvægt væri að norðurslóðir yrðu áfram vettvangur friðar, samtals og samvinnu.
Á Arctic Circle-ráðstefnunni hefði meðal annars verið fjallað um loftslagsvá, vaxandi alþjóðlega spennu og mikilvægi þess að rödd frumbyggja fengi að heyrast þegar ákvarðanir um framtíð svæðisins væru teknar.
Eiríkur lauk máli sínu með því að leggja áherslu á að öryggismál ein og sér myndu ekki ráða framtíð norðurslóða.
„Framtíð norðurslóða verður ekki tryggð með öryggi einu saman, heldur með samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð.“
