
Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður utan flokka og fyrrum ráðherra, hvatti alþingismenn til að styðja við starf Mænuskaðastofnunar Íslands og leggja sitt af mörkum til alþjóðlegrar vitundarvakningar um rannsóknir á mænuskaða.
Guðmundur Ingi ræddi málið undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Þar vakti hann athygli á ákalli Mænuskaðastofnunar í tengslum við áratugarátak Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar, WHO, sem miðar meðal annars að framförum í rannsóknum á lömun og öðrum meinum í taugakerfinu.
Gervigreind og róbótar í rannsóknum
Í máli Guðmundar Inga kom fram að Thor Aspelund og Margrét Jóhannsdóttir hefðu unnið skýrslu fyrir Mænuskaðastofnun Íslands þar sem farið var yfir rannsóknir á notkun gervigreindar og róbóta til stuðnings einstaklingum með mænuskaða.
Jafnframt var skoðað hvernig gervigreind gæti nýst við rannsóknir á mænuskaða og þróun áverkamænuskaða í völdum löndum.
Markmiðið væri meðal annars að greina sameiginleg mynstur í gögnum sem gætu fært vísindamenn nær því að finna lækningar við taugasjúkdómum, þar á meðal lömun af völdum mænuskaða.
Vill að málinu verði fylgt eftir
Guðmundur Ingi rifjaði einnig upp að Mænuskaðastofnun Íslands hefði verið stofnuð árið 2007 fyrir tilstuðlan Auðar Guðjónsdóttur hjúkrunarfræðings. Sagði hann Auði hafa barist ötullega fyrir því að vekja athygli á mænuskaða á alþjóðavettvangi og mikilvægi rannsókna á mögulegum lækningum.
Hann benti jafnframt á að nefndartillaga um mænuskaða hefði verið lögð fram á Alþingi árið 2011 og síðar fyrir Norðurlandaráð, meðal annars með það að markmiði að koma á samræmdri upplýsingasöfnun um mænuskaða.
Guðmundur Ingi sagði mikilvægt að slík mál féllu ekki niður og að starfinu yrði fylgt eftir þar til árangur næðist.
„Alþingismenn: Leggjum þessu frábæra máli lið í alþjóðastarfi okkar og með því að minnast reglulega á þetta góða mál í störfum okkar,“ sagði Guðmundur Ingi.
