1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

9
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

10
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Til baka

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni

Hennar hafði verið leitað vegna handtökuskipana

gloria kennari
Gloria Resendiz
Mynd: Samsett

Kennari við Hebron High School í Texas hefur verið handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot gegn barni og svonefnda grooming-hegðun, þar sem barni er komið í aðstæður sem geta leitt til kynferðislegrar misnotkunar.

Hin 35 ára gamla Gloria Resendiz gaf sig sjálf fram við lögreglu í Carrollton á þriðjudag eftir að hennar hafði verið leitað vegna handtökuskipana. Hún er nú í haldi í Denton-sýslu.

Málið kom upp eftir að stjórnandi við skólann hafði samband við lögreglu 27. september vegna rafrænna samskipta Resendiz við nemanda sem þóttu vekja áhyggjur. Nemandinn hafði verið í kennslu hjá henni á fyrra skólaári en var ekki lengur nemandi hennar þegar málið kom upp.

Að sögn lögreglu leiddu rannsókn og yfirferð gagna í ljós vísbendingar um áframhaldandi óviðeigandi samband kennarans við nemandann. Resendiz er grunuð um ósæmilegt kynferðislegt athæfi gagnvart barni með snertingu auk þess að hafa reynt að ávinna sér traust barns í kynferðislegum tilgangi.

Nemendur við skólann hafa lýst yfir mikilli undrun vegna málsins. Resendiz kenndi spænsku og var að sögn nemenda almennt vingjarnleg og átti í miklum samskiptum við nemendur.

Skólayfirvöld hafa upplýst foreldra um málið. Resendiz var sett í leyfi frá störfum og henni hefur verið bannað að koma inn á lóðir og í húsnæði skólahéraðsins.

Rannsókn lögreglu stendur enn yfir og ekki er útilokað að fleiri ákæruliðir eða sakargiftir bætist við eftir því sem frekari gögn verða yfirfarin.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Þurfum við að hafa áhyggjur af gervigreindinni?
Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Pólitík

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða
Pólitík

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna
Myndband
Heimur

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Heimur

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni

Hennar hafði verið leitað vegna handtökuskipana
Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna
Myndband
Heimur

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð
Heimur

Kærir Netanyahu og segir hann reyna að hylma yfir eigin ábyrgð

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla
Heimur

Prófessor í vondum málum eftir furðuleg atvik í bandarískum háskóla

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks
Heimur

Setti eigin líkamsvessa í mat samstarfsfólks

Loka auglýsingu