1
Innlent

Þekktur íslenskur maður ákærður fyrir þjófnað á plokkfiski

2
Innlent

Ingunn Rut fékk þriggja ára dóm fyrir Reykholtsmálið

3
Fólk

Fallegur og rúmlega aldargamall gimsteinn settur á sölu

4
Heimur

Flugvél Ameliu Earhart mögulega fundin

5
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

6
Innlent

Píanóflutningurinn varð dýrkeyptur fyrir Flutningaþjónustuna

7
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

8
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

9
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

10
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Til baka

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

„Það er erfitt að búa á landi þegar maður getur ekki tjáð sig á tungumáli samfélagsins“

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir
Kolbrún Áslaugar BaldursdóttirEr þingmaður Flokks fólksins
Mynd: Víkingur

Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir, þingmaður Flokks fólksins, segir mikilvægt að innflytjendur á Íslandi fái raunveruleg tækifæri til að læra íslensku, nýta menntun sína og reynslu og verða virkir þátttakendur í samfélaginu.

Kolbrún ræddi framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda fyrir árin 2026–2029 undir liðnum störf þingsins á Alþingi í gær. Áætlunin, sem kemur frá félags- og húsnæðismálaráðherra, er nú til umfjöllunar í velferðarnefnd Alþingis.

Hún sagði málið mikilvægt og löngu tímabært. Markmið áætlunarinnar væri meðal annars að bæta stöðu innflytjenda, efla íslenskunám, auðvelda fólki að nýta menntun sína og starfsreynslu og tryggja betra aðgengi að þjónustu og upplýsingum.

Kolbrún lagði sérstaka áherslu á mikilvægi íslenskukennslu og sagði erfitt að búa í landi án þess að geta tjáð sig á sama tungumáli og aðrir.

„Það skilja allir að það er erfitt að búa á landi þegar maður getur ekki tjáð sig á tungumáli samfélagsins. Það er því grundvallaratriði að gefa fólki raunverulegt tækifæri til að læra íslensku,“ sagði Kolbrún.

Hún sagði íslenskunámið þurfa að vera skýrt afmarkað og aðgengilegt, með áherslu á samtal og dagleg samskipti. Ekki væri hægt að ætlast til þess að fólk lærði tungumálið ef tækifærin til þess væru takmörkuð.

Þá lagði Kolbrún áherslu á að menntun og hæfileikar þeirra sem flytjast til landsins væru metin að verðleikum. Menntun væri fjárfesting og þjóðhagslega hagkvæmt væri að nýta þá þekkingu og reynslu sem innflytjendur byggju yfir.

Í framkvæmdaáætluninni er jafnframt lögð áhersla á rannsóknir, tölfræði og greiningar svo aðgerðir byggi á raunverulegum þörfum. Sérstaklega þurfi að huga að viðkvæmum hópum og tryggja að enginn verði út undan.

Kolbrún sagði áætlunina leggja grunn að markvissum aðgerðum en jafnframt þyrfti að sýna þolinmæði og úthald við framkvæmd þeirra.

„Það er hagur okkar allra að fólk sem hér sest að fái tækifæri til að læra tungumálið, nýta hæfileika sína og verða virkir þátttakendur í íslensku samfélagi,“ sagði Kolbrún.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar
Menning

Saga kafar ofan í heim gervigreindarinnar

Þurfum við að hafa áhyggjur af gervigreindinni?
Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni
Heimur

Kennari gaf sig fram eftir ásakanir um kynferðisbrot gegn barni

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu
Innlent

Nýtt forstjóraembætti auglýst hjá ríkinu

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Pólitík

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða
Pólitík

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna
Myndband
Heimur

Jerry Seinfeld hæddist að mótmælendum vegna dauða palestínskra barna

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm
Innlent

Peningar Akureyrings aftur fyrir dóm

Lögreglan býður foreldrum aðstoð
Innlent

Lögreglan býður foreldrum aðstoð

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn
Myndir
Fólk

Selja sögufrægt einbýli við Reykjavíkurtjörn

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá
Minning

Anna Valdimarsdóttir er fallin frá

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt
Innlent

Þjófar, fíkniefni og fárviðri í nótt

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið
Innlent

Julia óskar eftir hjálp við að laga listaverkið eftir spellvirkið

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg
Innlent

Sáu mann spreyja yfir Frjáls Palestína listaverkið á Skólavörðustíg

Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda
Pólitík

Segir íslenskunám lykil að virkri þátttöku innflytjenda

„Það er erfitt að búa á landi þegar maður getur ekki tjáð sig á tungumáli samfélagsins“
„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“
Pólitík

„Menn gera það ekki í fjandskap við stjórnvöld“

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum
Pólitík

Eiríkur varar við vaxandi spennu á norðurslóðum

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða
Pólitík

Guðmundur Ingi kallar eftir stuðningi við baráttuna gegn mænuskaða

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“
Pólitík

„Þjóðin er komin með upp í kok af þessu skattafylliríi“

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara
Pólitík

Nanna leggur til nýja leið gegn einmanaleika eldri borgara

Loka auglýsingu