
Jökull Sólberg Auðunsson og samstarfsfélagi hans horfðu upp á karlmann gera sér lítið fyrir og spreyja yfir pólitíska listaverkið á veggnum við hliðinni á Pennann Eymundsson á Skólavörðustíg. Jökull birti myndband af manninum á Facebook.
Verkið, sem listakonan Mai Linnéa Julia Maria, eða Julia eins og hún er kölluð, bjó til eftir að þjóðarmorð Ísraela á Gaza hófst árið 2023, sýnir stuðning við Palestínu en þar stendur meðal annars Frjáls Palestína. Julia hefur margoft þurft að þola að spreyjað sé á verkið hennar en hún málar jafnharðan yfir það. Í þetta skiptið urðu vitni eins og segir hér að ofan. Við færslu á Instagram þar sem Julia sýnir frá því þegar hún málaði listaverkið, skrifaði hún:
„Mitt agnarsmáa framlag til sameiginlegs átaks heimsins. Þessi veggur er orðinn eins konar barnið mitt. Mín leið til að halda geðheilsunni á meðan ég horfi upp á það allra versta sem hægt er að hugsa sér. En ég vona líka að hann fái fólk einhvern veginn til að hugsa, láta sig málið varða og jafnvel gera eitthvað.“
Jökull birti ljósmynd af skemmdarverkunum og myndskeið af manninum sem hann og samstarfsfélagi hans sáu spreyja á listaverkið en þeir starfa við hliðina á verkinu. Við færsluna skrifar hann:
„Þessi gæi var að spreyja yfir „Frjáls Palestína“ mural-inn við Skólavörðustíg.“
Á myndbandinu sést karlmaður klæddur í brúnan stakk og með Kippah (höfuðfat gyðinga) á kollinum koma út úr, Sangitamiya - hljóðfæraverslun.
Mannlíf heyrði í starfsfólki hljóðfæraverslunarinnar og spurði hvort þau hefðu orðið var við eitthvað grunsamlegt varðandi manninn, hvort hann hafi til dæmis verið með spreybrúsa á sér. Sögðu þau manninn hafa verið nokkuð öran en að öðru leyti hafi ekkert vesen verið á honum. Þau tóku ekki eftir því hvort hann hafi verið með sjáanlegan spreybrúsa á sér.
Færslan hefur vakið nokkra athygli síðan hún birtist fyrir klukkustund en fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason er einn af þeim sem tjáir sig við færsluna og skrifar einfaldlega: „Hvílíkur dónaskapur!“
Þá segja nokkrir að Jökull ætti að tilkynna málið til lögreglunnar en í samtali við Mannlíf segist Jökull ekki enn hafa haft samband við lögregluna, þar sem þeir félagar væru uppteknir í vinnunni.
