
Dómstóll í Þýskalandi hefur dæmt tvo menn í langa fangelsisrefsingu fyrir að hafa skipulagt árásir á einstaklinga sem styðja Ísrael í landinu, að undirlagi íranskra leyniþjónustuyfirvalda. Þetta kemur fram í frétt Al Jazeera.
Annar mannanna, sem er danskur ríkisborgari, var dæmdur í átta og hálfs árs fangelsi. Vitorðsmaður hans, sem er afganskur ríkisborgari, hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsisdóm. Báðir voru sakfelldir fyrir njósnir og tilraun til manndráps.
Samkvæmt þýskum saksóknurum tók Daninn, sem er nefndur Ali S, við fyrirmælum frá Quds-sveitum Íranska byltingarvarðliðsins (IRGC), sérsveit sem starfar meðal annars erlendis.
Málið kemur upp á sama tíma og nokkur Evrópulönd hafa sakað Íran um að standa á bak við fyrirhugaðar árásir á yfirráðasvæðum þeirra. Íran hefur áður hafnað slíkum ásökunum.
Fyrr í þessum mánuði ákærðu bresk yfirvöld tvo íranskan ríkisborgara fyrir að hafa ætlað að skipuleggja árás á gyðingasamfélagið í norðurhluta Englands.
