
Ónefndur kvenfangi kvartaði til umboðsmanns Alþingis yfir aðbúnaði sínum í Fangelsinu Hólmsheiði. Konan hafði frá upphafi afplánunar, að eigin sögn, ekki fengið úthlutaðan hefðbundinn fangaklefa heldur verið vistuð í myndavélaklefa og einangrunarklefa.
Kvörtunin laut einnig að því að Fangelsismálastofnun hefði ekki svarað erindum sem send voru fyrir hönd konunnar vegna málefna hennar. Af þeim sökum hefði hún ekki fengið formlega afstöðu stofnunarinnar og þar með ekki getað nýtt sér kæruheimild til dómsmálaráðuneytisins.
Umboðsmaður tók kvörtunina ekki til nánari meðferðar að svo stöddu þar sem málefni kvenfangans höfðu ekki verið borin undir dómsmálaráðuneytið.
Í bréfi umboðsmanns kemur fram að almennt verði mál ekki tekið til meðferðar hjá embættinu fyrr en stjórnvöld, þar á meðal æðra stjórnvald, hafi lokið umfjöllun sinni. Dómsmálaráðherra fer með yfirstjórn fangelsismála og hefur eftirlitsheimildir gagnvart Fangelsismálastofnun.
Kvenfanginn getur leitað aftur til umboðsmanns verði hún ósátt við viðbrögð ráðuneytisins eða skort á þeim.
Umboðsmaður lauk málinu 13. október.
