1
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

2
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

3
Innlent

Halldór Ingi enn ófundinn

4
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

5
Heimur

Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa

6
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

7
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

8
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

9
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

10
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

Til baka

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

„Vöndum okkur“

Elliði Alþingi
Elliði Vignisson er bæjarstjóri á landsbyggðinni
Mynd: Samsett

Ummæli Elliða Vignissonar, bæjarstjóra Ölfuss, um innflytjendur og múslima komu til umræðu á Alþingi í dag þegar tveir þingmenn ræddu málefni útlendinga undir liðnum störf þingsins.

Elliði hafði áður skrifað á Facebook að óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, væri að valda skaða. Hann sagði síðar í viðtali á Bylgjunni að gagnrýni hans beinist að innflytjendastefnu og hugmyndum sem byggi á trúarlegum kreddum eða venjum sem gangi gegn jafnrétti og frelsi.

Ása Berglind Hjálmarsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, nefndi Elliða sérstaklega á nafn í ræðu sinni og gagnrýndi orð hans harðlega. Eiríkur Björn Björgvinsson, þingmaður Viðreisnar, nefndi bæjarstjórann ekki á nafn en ræddi orðræðu þar sem heilir hópar útlendinga eru settir undir sama hatt.

Segir ekki rétt að beina aðgerðum að heilum samfélagshópum

Eiríkur sagði mikilvægt að umræða um málefni útlendinga gæti farið fram af yfirvegun og ábyrgð. Stjórnvöld þyrftu að hafa stjórn á landamærum og bregðast við þegar reglur væru brotnar en forðast ætti alhæfingar um fólk vegna uppruna þess.

„Það er mikilvægt að geta rætt þessi mál af yfirvegun, ábyrgð og virðingu án þess að alhæfa eða setja t.d. alla útlendinga undir sama hatt,“ sagði Eiríkur.

Hann lagði áherslu á að útlendingar væru ekki einsleitur hópur og að margir þeirra legðu mikið af mörkum til íslensks samfélags. Greina þyrfti á milli þeirra sem fylgdu lögum og þeirra sem brytu þau og beina aðgerðum stjórnvalda að raunverulegum vandamálum.

„Ábyrg stefna felst í því að beina aðgerðum að raunverulegri áhættu en ekki heilu samfélagshópunum,“ sagði Eiríkur.

Hann sagði jafnframt að skipulögð glæpastarfsemi væri sérstakt viðfangsefni stjórnvalda og að verið væri að efla löggæslu, alþjóðlegt samstarf og viðbrögð gagnvart þeim sem misnotuðu kerfið eða ógnuðu öryggi almennings.

Ása vitnaði beint í Elliða

Ása Berglind gekk lengra og tengdi umræðuna beint við ummæli bæjarstjórans í Ölfusi. Hún sagðist nýkomin frá París þar sem evrópskir jafnaðarmenn hefðu rætt uppgang stjórnmálaafla sem reyndu að ná markmiðum sínum með sundrungu og árásum á minnihlutahópa.

Hún sagðist sjá merki um sambærilega þróun hér á landi og gagnrýndi bæði Miðflokkinn og Sjálfstæðisflokkinn í því samhengi.

„Það að segja, með leyfi forseta: „Óheftur straumur innflytjenda, sérstaklega múslima, er að valda skaða“, líkt og bæjarstjóri Ölfuss gerði, er ekki í lagi,“ sagði Ása.

Hún spurði jafnframt hvaða fólk Elliði hefði í raun átt við með ummælum sínum og nefndi meðal annars Jasminu Vajzovic sem hefur sjálf gagnrýnt ummæli Elliða.

Ása sagði kjörna fulltrúa og æðstu stjórnendur bera ábyrgð á því að byggja samfélagið upp í stað þess að gera tiltekna hópa tortryggilega.

„Það er eðlilegt að gera þá kröfu til okkar að geta rætt um samfélagsleg vandamál án þess að gera heilan trúarhóp tortryggilegan,“ sagði Ása.

Í lok ræðu sinnar vísaði hún til 233. gr. almennra hegningarlaga og minnti á ákvæði um opinber ummæli sem beinast gegn einstaklingum eða hópum vegna tiltekinna persónuþátta.

„Vöndum okkur,“ sagði Ása að lokum.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember
Heimur

Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember

Toy Story-leikari sakaður um fjársvik og misnotkun á öldruðum
Heimur

Toy Story-leikari sakaður um fjársvik og misnotkun á öldruðum

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Vísindamenn vara við þrefaldri umhverfiskreppu
Heimur

Vísindamenn vara við þrefaldri umhverfiskreppu

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku
Heimur

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll
Heimur

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Innlent

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

„Vöndum okkur“
Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Pólitík

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður
Pólitík

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður

Loka auglýsingu