1
Fólk

Eitt krúttlegasta einbýli landsins komið á sölu

2
Peningar

Páll Steingríms stofnar fyrirtæki

3
Innlent

Halldór Ingi enn ófundinn

4
Innlent

Ákærð fyrir að svíkja hundruð þúsunda af heimilismanni

5
Heimur

Grunur um árás á mikilvæga olíuleiðslu Rússa

6
Innlent

Jón Guðni beit mann í geirvörtuna og sparkaði konu í lífbeinið

7
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

8
Heimur

Fyrirsætan og sundfatahönnuðurinn Sahara Ray látin

9
Heimur

Sögusagnir um dauða Kim Jong-un ganga um heiminn

10
Innlent

Stefán Einar kennir innflytjendum um en Frakkar segja annað

Til baka

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

„Handrit og leikstjórn eru algerlega í höndum embættismanna“

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir
Mynd: Alþingi

Nanna Margrét Gunnlaugsdóttir, þingmaður Miðflokksins, gagnrýndi harðlega fyrirkomulag við skipan í stjórnir ríkisfyrirtækja á Alþingi í dag og sakaði fjármálaráðherra um að fela sig á bak við valnefndir. Hún sagði embættismenn hafa fengið of mikil áhrif á skipan stjórnanna og beindi sérstaklega sjónum sínum að Viðreisn.

Nanna Margrét sagði að svar Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra við fyrirspurn hennar sýndi að valnefndir væru langt frá því að koma að öllum stjórnarskipunum á vegum ráðuneytisins.

Samkvæmt henni skipar fjármálaráðherra í stjórnir 30 félaga en aðeins í 12 þeirra sé stuðst við valnefnd. Ráðherrann skipi sjálfur valnefndina sem skili honum tveimur nöfnum fyrir hvert stjórnarsæti og velji hann síðan á milli þeirra.

Í öðrum félögum sé farið eftir tillögum ráðuneytisins. Nanna Margrét sagði það þýða að embættismenn hefðu veruleg áhrif á hverjir veljast til stjórnarsetu.

„Alls sitja starfsmenn ráðuneytisins í 33 stjórnarsætum sem aðal- eða varamenn og meira að segja í félögum þar sem er valnefnd,“ sagði Nanna Margrét og spurði hvort yfir höfuð hefði verið auglýst eftir fólki til setu í viðkomandi stjórnum.

Hún sagði fyrirtækin vera í eigu landsmanna og að fjármálaráðherra bæri ábyrgð á því hverjir sætu í stjórnum þeirra. Að hennar mati hefði valdið hins vegar í auknum mæli verið fært frá kjörnum fulltrúum til embættismanna.

Nanna Margrét nefndi Isavia og Íslandspóst sérstaklega. Hún sagði öllum nema einum hafa verið skipt út úr stjórn Isavia á síðasta ári og að sá eini sem hélt sæti sínu hefði verið tilnefndur af Viðreisn. Þá hefði fulltrúi Viðreisnar hjá Íslandspósti færst úr varastjórn í aðalstjórn á sama tíma og öðrum hefði verið skipt út.

„Ótrúleg tilviljun að bara Viðreisnarfulltrúarnir reyndust hæfir. Hver trúir því?“ sagði hún.

Þingmaðurinn sagði Viðreisn gjarnan leggja áherslu á almannahagsmuni umfram sérhagsmuni en dró í efa að sú stefna birtist í framkvæmd ríkisstjórnarinnar.

„Leikritið heitir Froða og frasar, frú forseti. Viðreisn fer með aðalhlutverkið en handrit og leikstjórn eru algerlega í höndum embættismanna,“ sagði Nanna Margrét.

Hægt er að nálgast svar Daða í heild sinni hér.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember
Heimur

Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember

Rússar þó lítt hrifnir af „nýjum nálgunum“ frá Evrópusambandinu og stjórnvöldum í Kænugarði
Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

Toy Story-leikari sakaður um fjársvik og misnotkun á öldruðum
Heimur

Toy Story-leikari sakaður um fjársvik og misnotkun á öldruðum

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

Vísindamenn vara við þrefaldri umhverfiskreppu
Heimur

Vísindamenn vara við þrefaldri umhverfiskreppu

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

Áslaug Arna kveður ömmu sína
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku
Heimur

Fyrsta ebólutilfellið greint í Nígeríu í nýrri bylgju faraldursins í Afríku

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll
Heimur

Tveir létust þegar kona ók pallbíl inn á knattspyrnuvöll

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París
Innlent

Eiríkur Rögnvaldsson varð lítið var við óeirðir í París

Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

„Vöndum okkur“
Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks
Pólitík

Segir kostnaðarumræðu ógna réttindum fatlaðs fólks

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum
Pólitík

Nanna segir Viðreisn leika aðalhlutverkið í froðu og frösum

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“
Pólitík

„Hættulegasti staður kvenna er heimili þeirra“

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður
Pólitík

Fríverslunarsamningur við Víetnam undirritaður

Loka auglýsingu