Einbýlishúsið við Birkihlíð 16 í Vestmannaeyjum er komið á sölu en óskað er eftir tilboðum í eignina. Húsið er á þremur hæðum, alls 259,1 fermetri að stærð samkvæmt fasteignaskrá, og hefur verið talsvert endurnýjað á undanförnum árum.
Húsið var reist árið 1956 og er steinsteypt. Miðhæð þess er 139 fermetrar, þar af er 12 fermetra sólhús. Jarðhæðin er 40,5 fermetrar og risið 51,5 fermetrar, þó tekið sé fram í fasteignalýsingu að raunverulegur gólfflötur þar sé nokkuð meiri. Þá fylgir húsinu 28,1 fermetra bílskúr á jarðhæð sem er innangengur úr húsinu.
Töluverðar endurbætur hafa verið gerðar á eigninni á síðustu árum. Gluggar hafa verið endurnýjaðir í áföngum og rafmagn yfirfarið. Baðherbergi var endurnýjað árið 2020 og árið 2026 voru þvottahús og útidyrahurðir endurnýjuð.
Einnig hefur verið ráðist í framkvæmdir utandyra. Húsið var málað að utan árið 2025 og þakið málað sumarið 2026. Þá hafa lóð og pallar verið endurnýjuð.

