
Fjögur ungmenni voru stöðvuð af lögreglu eftir að tilkynnt hafði verið um innbrot í húsnæði á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi eða nótt. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Lögregla hélt á vettvang eftir að tilkynning barst um að fjögur ungmenni hefðu brotist inn í húsnæði. Í kjölfarið stöðvuðu lögreglumenn bifreið þar sem meintir gerendur voru. Öll voru þau undir lögaldri og var haft samband við foreldra þeirra vegna málsins.
Þá barst lögreglu tilkynning um aðila í bifreið sem sagður var hafa gefið börnum peninga fyrir utan skóla. Lögregla fór á vettvang en bifreiðin var farin þegar þangað var komið og fannst ekki.
Einnig var tilkynnt um slagsmál tveggja einstaklinga. Þegar lögreglu bar að garði voru átökin yfirstaðin og hvorugur aðilinn gerði kröfur vegna málsins.
Nokkuð var um afskipti lögreglu af ökumönnum vegna gruns um akstur undir áhrifum. Einn ökumaður var handtekinn grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og þrír til viðbótar voru handteknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.
Loks sinnti lögregla tilkynningu um þjófnað í matvöruverslun og fór á vettvang vegna málsins.
