
Íslandsbanki hefur höfðað mál gegn Húsvíkingi vegna rúmlega tveggja milljóna króna skuldar sem rekja má til láns sem tekið var í gegnum app bankans.
Samkvæmt stefnu tók maðurinn 2,45 milljóna króna lán í appi Íslandsbanka í júlí 2025. Lánið átti að greiðast til baka með 60 mánaðarlegum afborgunum.
Maðurinn hætti að greiða af láninu í júlí síðastliðnum samkvæmt stefnunni. Vegna vanskilanna var öll skuldin gjaldfelld og málið sent í löginnheimtu.
Íslandsbanki krefur Húsvíkinginn um samtals 2.069.740 krónur auk vaxta, dráttarvaxta og málskostnaðar.
Í stefnunni kemur fram að skuldin hafi ekki fengist greidd þrátt fyrir innheimtutilraunir. Þar sem lögheimili mannsins er skráð ótilgreint en þó á Húsavík hyggst bankinn birta stefnuna í Lögbirtingablaðinu.
