
Grískur karlmaður sem ákærður er fyrir að smygla tæpum 43 kílóum af kókaíni til Íslands segist ekki vita hvernig efnin komust í bíl hans. Málið var tekið fyrir í Héraðsdómi Austurlands, en maðurinn hefur setið í gæsluvarðhaldi frá handtöku sinni í mars. Austurfrétt sagði frá málinu.
Kókaínið fannst falið undir fölskum botni sendibílsins þegar maðurinn kom með Norrænu til Seyðisfjarðar 27. mars. Styrkleiki efnanna mældist um 84 prósent og var þetta þá mesta magn kókaíns sem lagt hafði verið hald á hér á landi.
Maðurinn, Alexandros Katzanos, sagðist hafa komið til Íslands í atvinnuleit og ætlað að kanna möguleika á starfi við viðgerðir á Caterpillar-vinnuvélum hjá fyrirtækinu Klett. Hann hafði þó hvorki haft samband við Klett né gert ráðstafanir vegna gistingar meðan á atvinnuleitinni stæði.
Við aðalmeðferð málsins kom einnig fram að Katzanos hefði eytt öllum gögnum úr síma sínum meðan hann beið eftir tollskoðun. Hann sagði það hafa verið vegna ótta við að honum yrði meinað að koma til landsins, en gat ekki útskýrt hvers vegna nauðsynlegt hefði verið að eyða öllum gögnum.
Grunsemdir um tengsl við annan Grikkja
Athygli vaknaði á því að annar grískur maður kom með Norrænu á sama tíma og ók bíl á undan Katzanos frá borði. Ekkert fíkniefni fannst í bíl þess manns, en honum var meinað að koma til landsins vegna meintra tengsla við erlend mótorhjólasamtök.
Katzanos sagðist fyrst ekki þekkja manninn en viðurkenndi síðar að þeir þekktust. Gögn sem bárust frá útlöndum bentu jafnframt til þess að þeir hefðu ferðast saman víða um Evrópu, meðal annars á leið sinni til Danmerkur áður en þeir fóru um borð í Norrænu.
Rannsóknargögn sýndu einnig að Katzanos hefði ferðast mikið um Evrópu árið áður en hann var handtekinn. Þá höfðu milljónir króna borist inn á bankareikning hans á einu ári án þess að skýringar hans á uppruna fjárins þættu fyllilega sannfærandi að mati rannsóknaraðila. Fram kom að hann hefði áður hlotið sjö ára fangelsisdóm fyrir fíkniefnabrot erlendis, þótt hann héldi því fram að það mál hefði verið fellt niður.
Gæti hafa verið burðardýr
Verjandi Katzanos spurði rannsóknaraðila hvort hann kynni að hafa verið burðardýr fyrir stærra glæpanet. Eitt vitni taldi mögulegt að hann tengdist hópi sem sæi um dreifingu fíkniefna um Evrópu, en tók fram að starfsemi slíkra hópa væri gjarnan skipulögð þannig að þátttakendur hefðu takmarkaða vitneskju um heildarumfang hennar.
Hámarksrefsing fyrir brotið getur verið 12 ára fangelsi. Ekki liggur fyrir hvenær dómur verður kveðinn upp.
