
Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, óskar eftir reynslusögum íslenskra notenda Apple-tækja vegna skorts á íslenskum tungumálastuðningi.
Logi fundaði með fulltrúum Apple í apríl og óskaði eftir að íslenska yrði innleidd í stýrikerfi fyrirtækisins. Í kjölfarið hefur íslenskum máltæknigögnum verið deilt með Apple til að auðvelda innleiðinguna.
Nú vill ráðuneytið safna dæmum um þær hindranir sem íslenskir notendur mæta. Sérstök áhersla er lögð á aðgengismál fatlaðs fólks, en raddstýring og aðrir innbyggðir eiginleikar Apple-tækja geta skipt miklu fyrir sjálfstæði notenda.
Logi segir máltækni ekki vera munað heldur mannréttindamál og hvetur fólk til að deila reynslu sinni.
ÖBÍ réttindasamtök og Almannaróm vinna með ráðuneytinu að verkefninu. Reynslusögur geta meðal annars varðað samskipti, nám, atvinnu og dagleg verkefni.
