
Húsleitin í Ölgerðinni og grunsemdir um stórfellda markaðsmisnotkun setja aðaleigandann, Boga Þór Siguroddsson, í afleita stöðu. Tvö fyrirtæki Boga Þórs eiga samtals 21 prósent hlutafjár í móðurfélagi Ölgerðarinnar, Beru, sem er skráð fyrirtæki í Kauphöllinni. Bogi hefur lagt mikið upp úr heiðarleika í viðskiptum en hann missti á sínum tíma Húsasmiðjuna í hendur þeirra Árna Haukssonar og Hallbjörns Karlssonar. Bogi Þór skrifaði bókina Fjandsamleg yfirtaka sem dregur upp ófagra mynd af Árna og Hallbirni.
Bókin fjallar um það þegar Bogi taldi sig hafa gert samkomulag um kaup á Húsasmiðjunni af Jóni Snorrasyni og fjölskyldu en var svikinn af þeim Árna og Hallbirni að eigin mati. Bogi lagði í skrifum sínum mikla áherslu á heilindi, heiðarleika og siðferði enda þykir hann vinna þannig í rekstri fyrirtækja sinna innan samstæðu Fagkaupa. Fyrirtækin eiga að starfa innan ramma laga og í anda laga, segir Bogi Þór.
Það mál sem nú er til umfjöllunar Samkeppniseftirlitsins vegna meintra brota Ölgerðarinnar hlýtur því að vefjast mikið fyrir Boga og má mikið vera ef hann sem langstærsti hluthafinn muni ekki krefjast breytinga á yfirstjórn Ölgerðarinnar. Bogi á ekki sjálfur sæti í stjórn Beru en var áður formaður. Stjórnina skipa nú Andri Þór Guðmundsson formaður, Rannveig Eir Einarsdóttir varaformaður, Magnús Árnason, Gerður Huld Arinbjarnardóttir og Sigríður Elín Sigfúsdóttir. Andri Þór var forstjóri Ölgerðarinnar þar til á þessu ári og varaformaðurinn, Rannveig Eir, er umsvifamikill byggingarverktaki og stjórnarmaður og stór hluthafi í SÝN. Slúðrað er um að hitnað hafi verulega undir stjórn og framkvæmdastjóra vegna málsins og Bogi muni láta til skarar skríða gegn þeim til að orðspor hans skaðist ekki frekar ...