1
Heimur

Neyðartilvik kom upp í flugi til Tenerife

2
Heimur

Enn eitt áfallið í Kennedy-fjölskyldunni

3
Minning

Áslaug Arna kveður ömmu sína

4
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

5
Innlent

Kyrkti sambýliskonuna og barði ítrekað í andlitið

6
Fólk

Sérstætt einbýlishús með óvenjulegt útlit til sölu

7
Pólitík

Ummæli Elliða um meinta skaðsemi múslima tekin fyrir á Alþingi

8
Pólitík

Sigurður Ingi lætur Kristrúnu heyra það og krefst aðgerða

9
Innlent

Jasmina skorar á Elliða að segja hvaða skaða fjölskylda hennar hafi valdið

10
Innlent

Ásgeir grípur til varna eftir Kveiksumfjöllun um Ölgerðina

Til baka

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

„Eftir hverju er beðið?“

Leikstjórar NAZA
Leikstjórar NAZAKristinn vill harðar aðgerðir gegn Ísrael
Mynd: TIZIANA FABI / AFP

Það var stútfullt í öllum sölum Bíó Paradísar þegar heimildarmyndin NAZA var sýnd þar í gærkvöldi í samstarfi við Courage International. Kristinn Hrafnsson, ritstjóri WikiLeaks, segir myndina varpa ljósi á aðferðir ísraelska hersins á Gaza og hvetur íslensk stjórnvöld til að grípa til harðra aðgerða gegn Ísrael.

Í færslu á Facebook segir Kristinn myndina ekki auðvelda áhorfs, enda fjalli hún um „þjóðarmorð, slátrun barna og mannlega grimmd“. Hann segir áhorfið hafa vakið hugrenningar um „lágkúru illskunnar“, með vísan til heimspekingsins Hönnu Arendt.

Kristinn segir kjarnann í myndinni vera viðtöl við ísraelska hermenn og vekur sérstaka athygli á því hversu margir þeirra hafi starfað í tölvu- og njósnadeild ísraelska hersins, Unit 8200.

„Þar eru kaldrifjuðustu morðingjarnir, unga fólkið sem situr í þægindum fyrir framan tölvuskjái í Tel-Aviv og velur, með aðstoð vitlíkis (AI), skotmörkin þar sem slátra skal fólki,“ skrifar Kristinn.

Hann segir að við val á skotmörkum séu notuð „vandlega úthugsuð kerfi um hvernig drepa má sem flesta með reikniformúlur og hugbúnað að vopni“.

Kristinn nefnir sérstaklega hugbúnað sem beri heitið „Hvar er pabbi?“ (Where’s Daddy?). Hann segir kerfið meðal annars nýta upplýsingar úr símum eiginkvenna og barna þess sem skilgreindur sé sem skotmark.

„Það er beinlínis stefna að sprengja heimkynni manna þegar þeir eru í faðmi fjölskyldunnar, helst þegar allir eru sofandi eða að borða saman kvöldmat. Öllum er slátrað,“ skrifar Kristinn og segir vitnisburðinn í myndinni sýna að allir íbúar Gaza séu taldir réttdræpir.

Hann segir myndina ganga gegn fullyrðingum Ísraels um að her landsins reyni sérstaklega að hlífa óbreyttum borgurum.

Vill viðskiptabann, ferðabann og stjórnmálaslit

Kristinn fjallar einnig um muninn á Hamas sem stjórnmálasamtökum og vopnuðum armi samtakanna, al-Qassam-sveitunum. Hann líkir sambandinu við tengsl Sinn Féin og Írska lýðveldishersins (IRA) á Norður-Írlandi og bendir á að einstaklingar sem Ísraelar skilgreini sem liðsmenn Hamas geti einnig verið borgaralegir starfsmenn á Gaza.

Í umræðum eftir sýninguna hafi fólk meðal annars spurt hvað hægt væri að gera. Kristinn segir svar sitt vera að þrýsta á íslensk stjórnvöld um að grípa til aðgerða gagnvart Ísrael.

Hann leggur til þrjú skref:

  • „Banna öll viðskipti við Ísrael.“
  • „Banna Ísraelum að ferðast til Íslands.“
  • „Slíta stjórnmálatengsl við Ísrael.“

Kristinn segir að aðgerðirnar séu ekki róttækar og eigi sér sögulegar hliðstæður. Hann telur þær þvert á móti hófleg viðbrögð miðað við alvarleika málsins.

„Raunar eru þetta sjálfsögð og fremur hófleg skref, miðað við alvöru málsins og eiginlega eðlilegra að spyrja: „Eftir hverju er beðið?““ skrifar Kristinn.

Kjósa
Hvernig finnst þér þessi grein? Skrá inn til að kjósa

Komment

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Hleður athugasemdir…
Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu
Fólk

Guðmundur Ingi opnar sig um krabbameinsgreiningu

„Til þess að geta farið í þessa leit þurfti ég að bíða í rúmt ár“
Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart
Heimur

Bananamaður í Biden-grímu kom lögreglu á óvart

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple
Pólitík

Ráðuneytið herðir þrýstinginn á Apple

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins
Heimur

Fjarlægur útvarpsblossi gæti afhjúpað leyndardóm úr frumbernsku alheimsins

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi
Peningar

Íslandsbanki stefnir Húsvíkingi vegna láns sem tekið var í appi

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda
Myndir
Fólk

Þriggja hæða einbýlishús í Eyjum leitar nýrra eigenda

Lögregla kölluð að skóla vegna aðila sem gaf börnum peninga
Innlent

Lögregla kölluð að skóla vegna aðila sem gaf börnum peninga

Kosningasigur miðjuvinstrisins gæti breytt stefnu gagnvart Palestínumönnum
Heimur

Kosningasigur miðjuvinstrisins gæti breytt stefnu gagnvart Palestínumönnum

Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember
Heimur

Rússland reiðubúið að hefja viðræður við Bandaríkin og Úkraínu á ný í nóvember

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu
Innlent

Segist ekkert vita um 43 kíló af kókaíni sem fundust í bíl hans í Norrænu

Grikkinn Alexandros Katzanos segist hafa komið til Íslands í atvinnuleit
Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku
Innlent

Sýknaður eftir kynferðisleg Snapchat-samskipti við 14 ára stúlku

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum
Innlent

Þorsteinn Már tapaði málinu gegn Seðlabankanum

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael
Innlent

Vill að Ísland grípi til þriggja aðgerða gegn Ísrael

Lögregla kölluð að skóla vegna aðila sem gaf börnum peninga
Innlent

Lögregla kölluð að skóla vegna aðila sem gaf börnum peninga

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði
Innlent

Kvenfangi kvartaði undan klefamálum á Hólmsheiði

Loka auglýsingu