
Verðlaunaheimildarmyndin NAZA eftir ísraelsku leikstjórana Yuval Abraham og Rachel Szor var sýnd í Bíó Paradís í gærkvöldi en troðfullt var á sýningunni. Athygli vekur að ekki einn þingmaður hafi nýtt boðsmiða sem þeim bauðst.
Courage International og Bíó Paradís stóðu fyrir sýningu heimildarmyndarinnar NAZA, sem vakið hefur mikla athygli á alþjóðavettvangi. Í myndinni er rætt við 24 uppljóstrara úr ísraelska hernum og leyniþjónustu hans, sem greina frá því hvernig gervigreind var notuð við hernaðaraðgerðir á Gaza, þar sem tugþúsundir óbreyttra borgara hafa fallið. Myndin vekur áleitnar spurningar um notkun gervigreindar í hernaði og hvernig þeir sem nýta tæknina meta mannfall meðal almennra borgara.
Að lokinni sýningu myndarinnar fóru fram pallborðsumræður um efni hennar og þær siðferðilegu og samfélagslegu spurningar sem hún vakti um notkun gervigreindar í hernaði og árásir Ísraela á óbreytta borgara á Gaza.
Meðal þátttakenda var Emad Kiayei, meðstofnandi Consortium for AI and Existential Risk (AiXist) og framkvæmdastjóri Middle East Treaty Organization (METO). Hann hefur starfað við rannsóknir og ráðgjöf í samstarfi við virta háskóla, þar á meðal Berkeley, Princeton og Columbia. AiXist rannsakar hættur sem geta skapast þegar gervigreind er nýtt í tengslum við gereyðingarvopn.
Þá tóku þátt í umræðunum Kolfinna Tómasdóttir, meðstofnandi AiXist, og Þórir Jónsson Hraundal, lektor í Mið-Austurlandafræðum og arabísku við Háskóla Íslands og tengdur Palestínuverkefni skólans.
Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, framkvæmdastjóri Courage International, stýrði umræðunum.
Mannlíf heyrði í Þórhildi Sunnu og spurði hana hvort þingmönnum og ráðherrum hafi verið boðið á myndina og ef svo væri, hversu margir hefðu þegið boðið. Ekki einn einasti þingmaður nýtti boðsmiðann en tók fram að utanríkisráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir er stödd erlendis. Þá er dómsmálaráðherra, Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, einnig erlendis.
„Öllu þinginu var boðið. Veit ekki til þess að neinn hafi mætt. Amk voru engir boðsmiðar nýttir af þingmönnum. 5 mættu úr starfsliði utanríkisráðuneytisins,“ svaraði hún í skriflegu svari til Mannlífs.
Aðspurð um það hvað henni fyndist um þá staðreynd að ekki einn þingmaður hafi þegið boðsmiðann segir Þórhildur Sunna það vera vonbrigði. Hvetur hún Alþingisfólk til þess að fjölmenna á aukasýningu á myndinni á sunnudaginn.
„Það eru vonbrigði, enda myndin með mikilvæg skilaboð sem allir þingmenn ættu að láta sig varða. Hvet öll á Alþingi að fjölmenna á sunnudaginn til þess að öðlast dýpri skilning á gangvirki þjóðarmorðsins á Gaza og þeirri stórkostlegu hættu sem fylgir því að innleiða gervigreind í hernað og öryggisgæslu.“
