
Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands og núverandi stjórnarformaður Arctic Circle, segir að raunveruleg seigla samfélaga felist ekki aðeins í því að standast áföll heldur einnig að læra af þeim og koma sterkari út úr erfiðleikum.
Ólafur Ragnar ræddi þessi mál í viðtali við Aylu Majid, stofnanda og forstjóra Planetive og fulltrúa í Global Future Council Alþjóðaefnahagsráðsins. Viðtalið birtist á EU Reporter og er greinin merkt sem skoðanagrein gestahöfundar.
Tilefni viðtalsins var nýafstaðið Arctic Circle Assembly í Reykjavík. Þar var meðal annars rætt um framtíð norðurslóða og þær áskoranir sem samfélög á köldustu svæðum heims standa frammi fyrir vegna loftslagsbreytinga.
Seigla verður ekki byggð í miðri kreppu
Ólafur Ragnar segir í viðtalinu hugtakið seiglu oft misskilið, en hann var sérstaklega spurður um það í viðtalinu, og að það snúist um mun meira en að standast einstök áföll.
„Raunveruleg seigla er miklu dýpri. Hún er geta samfélags til að þola ekki aðeins röskun heldur læra af henni, aðlagast henni og koma út úr henni með sterkari stofnanir, meira traust og skýrari tilfinningu fyrir sameiginlegum tilgangi,“ segir Ólafur Ragnar.
Hann vísar meðal annars til reynslu sinnar úr forsetatíðinni, á árunum 1996 til 2016, þegar íslenskt samfélag gekk í gegnum miklar efnahagslegar og samfélagslegar sviptingar.
„Lærdómurinn var sá að seiglu er ekki hægt að byggja upp í miðri kreppu einni saman. Hana verður að rækta löngu áður en kreppan skellur á, með menntun, félagslegri samheldni, vísindalegum skilningi, opinni samfélagsumræðu og getu samfélaga til að vinna saman.“
Ólafur Ragnar bendir jafnframt á að ríki heims séu orðin svo samtengd að áföll á einum stað geti haft áhrif langt út fyrir landamæri. Fjármálakreppur, heilbrigðisógnir og þrýstingur á matvæli, vatn, orku og náttúru geti þannig haft áhrif á fólksflutninga, öryggi og efnahagslegan stöðugleika víða um heim.
„Seigla verður því að vera bæði staðbundin og alþjóðleg. Hún verður að vera til staðar í þorpum, borgum, skólum, sjúkrahúsum og litlum fyrirtækjum en jafnframt studd af alþjóðlegri samvinnu og ábyrgri forystu,“ segir hann.
Hagvöxtur segir ekki alla söguna
Í viðtalinu er Ólafur Ragnar einnig spurður hvernig meta eigi efnahagslega seiglu þegar horft er út fyrir hefðbundna mælikvarða á borð við hagvöxt og fjárfestingu.
Hann segir slíka mælikvarða mikilvæga en að þeir gefi ekki einir og sér fullnægjandi mynd af styrk samfélags. Ekki sé hægt að tala um raunverulega sterkt hagkerfi ef stórir hópar fólks hafi ekki aðgang að heilbrigðisþjónustu, hreinu vatni, næringarríkum mat, áreiðanlegri orku eða menntun og færni til að móta eigin framtíð.
„Við ættum ekki aðeins að spyrja hversu hratt hagkerfi vex heldur hversu víða tækifærunum er dreift. Við ættum að spyrja hvort vöxturinn styrki samfélög, skapi mannsæmandi störf, bæti heilsu og menntun og geri fólki kleift að lifa við meira öryggi og reisn,“ segir Ólafur Ragnar.
