
Spretthópur um tækifæri og áskoranir í utanríkisviðskiptum kom saman í fyrsta sinn í utanríkisráðuneytinu við Austurhöfn í gær. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra skipaði hópinn nýverið.
Hópnum er ætlað að greina stöðu Íslands í alþjóðaviðskiptakerfinu, meta helstu tækifæri og áskoranir og kortleggja ný viðskiptatækifæri. Vinnan nær meðal annars til innri markaðar EES, Bandaríkjanna, Bretlands, Kanada og Asíu.
Bjarni Benediktsson er formaður hópsins en auk hans eiga Hrund Rudolfsdóttir og Sigurður Hannesson sæti í honum. Fulltrúar utanríkisráðuneytisins eru Högni S. Kristjánsson og Rún Ingvarsdóttir.
Hópnum er falið að móta sameiginleg markmið stjórnvalda og atvinnulífs og leggja fram tillögur að aðgerðum til skemmri og meðallangs tíma. Jafnframt verður fjallað um samkeppnishæfni Íslands, hagsmunagæslu og EES-samninginn.
Gert er ráð fyrir að hópurinn skili aðgerðaáætlun með markmiðum snemma árs 2027.
